VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Húsið er á mjög góðum stað í Cabo Roig innst inní botnlanga þar sem stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf alla daga og fjölmargir góðir veitingastaðir. Matvöruverslun, apótek, bankar og fleira eru í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu.
Mjög stór sameiginlegur sundlaugargarður með tveimur sundlaugum er í sameign sem gestir hafa aðgang að.
Komið er inn í opið rými með góðri stofu og borðstofu. Út frá stofunni er hægt að ganga út á verönd fyrir framan húsið, þar er borð, stólar,kolagrill og sólbekkir og góð aðstaða til að borða úti. WiFi internet er í húsinu.
Nýuppgert eldhús með uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Út frá eldhúsi er gengið út á bakverönd og þar er þvottavélin.
Svefnherbergin eru tvö
Herbergi á 1. hæð er með hjónarúmi, loftkælingu og fataskáp.
Hjónaherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, loftkælingu, fataskápum og inn af því herbergi er baðherbergi með sturtu. Góðar svalir eru út frá hjónaherbergi þar er lítið borð og stólar.
Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn í húsinu.
Baðherbergin eru tvö
Á 1. hæð er ný uppgert baðherbergi með WC, vaski og sturtu
Á 2. hæð er nýuppgert baðherbergi innaf hjónaherberginu með WC, vaski og sturtu.
Baðhandklæði fylgja leigu, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.
