VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
8 manns -
Svefnherbergi4
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm3
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Falleg stofa með tungusófa ásamt stækkanlegu borðstofuborði og stólum, Smart TV og PlayStation 4 leikjatölva með tveimur fjarstýringum og 4 leikjum. Í húsinu er WiFi internet í gegnum ljósleiðara og rúmlega 120 sjónvarpstöðvar í boði. Loftkæling er í stofunni. Frá stofunni er gengið út í mjög stóran flísalagðan garð sem snýr í suður með sófasetti, markísu, borði og stólum, 6 sólbekkjum, sólhlíf og frábærri aðstöðu til að sóla sig og njóta blíðunnar á Spáni. Vel búið eldhús með öllum helstu áhöldum til matargerðar. Út frá eldhúsi er gengið út í bakgarðinn með Weber Q3200 gasgrill ásamt þvottavél, auka ísskáp fyrir drykki og aðstöðu til að hengja upp þvott. Þaðan er einnig hægt að ganga út á veröndina við húsið.
Svefnherbergin eru fjögur
Svefnherbergi 1: Á jarðhæð er rúmgott herbergi með góðu hjónarúmi og kommóðu.
Svefnherbergi 2: Er á annari hæð með góðu hjónarúmi, fataskápum, stórri kommóðu og fallegum suðursvölum. Innangengt er inná baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi 3: Er á annari hæð með góðu hjónarúmi, fataskápum og innangengt inná sér baðherbergi með stórri sturtu.
Svefnherbergi 4: Lítið risherbergi er á efstu hæðinni með tveimur einstaklingsrúmum og loftkælingu.
Öll svefnherbergin eru með loftkælingu og moskító net er fyrir gluggum. Sængur eru í húsinu sem gestir geta notað á haustin og vorin eða eftir þörfum. Koddar og rúmföt fylgja og einnig er gott barnaferðarúm með sæng og kodda fyrir ungabarn.
Baðherbergin eru þrjú
Á jarðhæð er baðherbergi með sturtu, salerni og vaski.
Á 2. hæð er tvö baðherbergi - innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og vaski.
Innaf hinu svefnherberginu er gott baðherbergi með stórri sturtu, salerni og vaski.
Baðhandklæði fylgja en gestir eru beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari og sléttujárn er í húsinu.
Svalir, garður og sameiginleg sundlaug
Mjög stór einkagarður sem snýr í suður er við húsið sem allur er flísalagður. Þar eru borð, stólar, sólbekkir, Weber gasgrill og frábær aðstaða til að njóta blíðunnar á Spáni, grilla góðan mat og sóla sig, einnig er yfirbyggð pergóla með lokanlegum hliðum. Tilvalið útisvæði til að borða, spila og njóta í skjóli og skugga.
Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar og einnig litlar svalir í suður frá ganginum.
Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni til sjávar.
Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug með nuddpotti og sturtur.