Site logo

SKILMÁLAR

Skilmálar þessir gilda um allar bókanir gerðar í gegnum heimasíðu, tölvupóst eða síma við  Sumarhús á Spáni (SHS) um leigu orlofseigna á Spáni.

Með því að samþykkja skilmála þessa er verið að koma á beinu samnings sambandi við Fasteignareiganda(FE) sem leigutaki ætlar að leigja af. SHS er ekki aðili að samningi þessum en kemur samningsaðilum saman á tryggan hátt.  Tilgangur SHS er að greiða fyrir leigu á orlofseignum og leiða saman samningsaðila í gegnum vefsíðu sína. Skilmálar þessir hafa verið samþykkt af FE og hafa þeir gefið SHS fullt umboð til þess að gera leigusamning byggðan á þessum skilmálum.

1. Bókanir og greiðslur

  • Sá sem lýkur bókunarferlinu verður að vera eldri en 25 ára, og a.m.k. einn viðskiptavinur sem dvelur í leigueign skal vera yfir 25 ára aldri.
  • Til að staðfesta bókun skal leigutaki greiða 50% af leiguverði með kortagreiðslu í gegnum örugga greiðsugátt Rapyd.
  • Með greiðslu er kominn á samningur milli leigutaka og FE um skammtímaleigu. Engin endurgreiðsla mun eiga sér stað á þessum hluta ef hætt er við leigu.
  • Fullnaðargreiðslu fyrir leigu þarf að greiða eigi síðar en 6 vikum fyrir komutíma.

2. Leiguverð

  • Leiguverð er samkvæmt verðskrá á heimasíðu hverju sinni. Innifalið í leiguverði er 15 til 35 kWh (fer eftir stærð leigueignar) stundir af rafmagni pr. dag. Greitt er fyrir umfram notkun á rafmagni – dregið af tryggingafé.

3. Koma og brottför

  • Leigutími hefst kl. 16.00 á komudegi og endar kl. 12.00 á brottfarardegi.
  • Samþykkja má annan brottfarartíma í samráði við FE ef ekki þarf að gera leigueign tilbúna samdægurs fyrir næsta leigutaka.
  • Ef leigutaki skilar ekki af sér leigueign á réttum tíma hefur FE heimild til að rukka leigutaka um 30.000 kr. vegna aukins kostnaðar sem hlýst af viðkomandi seinkun.

4. Breytingar og forföll

  • Ef breyta þarf bókun eftir staðfestingu bókunar skal hafa samband við SHS. SHS mun kappkosta að koma á móts við leigutaka um breytingu á bókun en getur ekki tryggt að slík beiðni verði uppfyllt án kostnaðar.
  • Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á sínum leigutíma og ef til seinkunar eða forfalla kemur vegna ferða hans er það á hans eigin ábyrgð.

5. Þrif

  • Það er hluti af skilmálunum að leigutakar greiði €80-€250 fyrir brottfararþrif og þvott á líni í lok dvalar, upphæð fyrir þrif kemur fram við bókun.
  • Leigueign skal vera hrein þegar leigutaki kemur, vera með hreinum rúmfatnaði, handsápu, uppþvottalegi, salernispappír og handklæðum.
  • Telji leigutaki aðkomu ábótavant er hann tekur við leigueign skal hann tafarlaust gera viðvart svo hægt sé að gera úrbætur. Að öðrum kosti skoðast að leigutaki telji aðkomu fullnægjandi.
  • Þótt greitt sé fyrir brottfararþrif gildir sú regla að leigutaki fjarlægir alla matarafganga, hendir öllu rusli úr húsinu og skilur við öll eldunar- og mataráhöld hrein og tilbúin til notkunar fyrir næsta leigutaka.  Á þetta einnig við um útigrill þar sem þau eru til staðar.

6. Tryggingar og lyklaafhending

  • Sem tryggingu fyrir leigugreiðslum, verulegri misnotkun á eigninni og skemmdum verður að greiða tryggingu €300-€500, upphæð tryggingar kemur fram við bókun. 
  • Einnig er €30 þjónustugjald á allar bókanir.
  • Ekki er verið að leggja fram tryggingu vegna þess að glös, diskar og annað lítilsháttar getur brotnað heldur fyrir verulegum skemmdum eða eyðileggingu.
  • Eigandi eignarinnar eða umsjónaraðili áskilur sér rétt að taka af framangreindri upphæð ef slík misnotkun eða eyðilegging hefur átt sér stað á eigninni.
  • Trygging er endurgreidd til leigjandans þegar lyklum hefur verið skilað eigi síðar en 10 dögum eftir heimkomu. Umsjónaraðili á Spáni fer yfir leigueign og lætur eiganda vita ef eitthvað er.
  • Lyklar eru afhentir á Íslandi eða Spáni (fer eftir leigueign).

7.  Skyldur og skuldbindingar leigutaka

  • Leigutaki skuldbindur sig til að ganga um eign samkvæmt reglum hússins.
  • Verði tjón af völdum leigutaka eða gesta hans er leigutaki ábyrgur fyrir skemmdum og ber að greiða viðgerð eða bætur á viðkomandi tjóni.
  • Leita skal til þriðja aðila til að meta og gefa raunhæft verð í tjónið sem skal bætt að fullu af leigutaka. Á þessi liður eingöngu við ef um óeðlilega notkun er að ræða af völdum ásetnings eða gáleysis.
  • Fjöldi einstaklinga sem dvelja í fasteign má ekki fara yfir hámarksfjölda er kemur fram á upplýsingasíðu fasteignar á vefsíðu SHS. Börn 2 ára eða yngri teljast ekki til hámarksfjölda.
  • Gestir eru leyfðir á daginn en þeim er ekki leyft að gista yfir nótt.
  • Gæludýr er ekki leyfð og reykingar eru bannaðar innandyra.
  • Virða ber nágranna og hávaða skal lágmarka á öllum tímum.
  • Leigutakar eru beðnir að hafa í huga að húseigendur eru ábyrgir fyrir hegðun þeirra gagnvart nágrönnum og húsfélagi.
  • Ef liggur fyrir að nágrannar verða fyrir óþægindum áskilur FE sér rétt til að fara fram á að leigutaki yfirgefi fasteign án rétts til að krefjast hvers konar bóta.
  • Ganga skal vel um hið leigða húsnæði og halda því hreinu á meðan dvöl stendur.
  • Sé loftkæling notuð skulu dyr og gluggar vera lokuð annars kemur kælingin ekki að neinu gagni og neytir ómælds rafmagns. Vinsamlega hafið í huga að rafmagn er mjög dýrt á Spáni og viljum við að leigjendur hafi það í huga við notkun á loftkælingunni – ef óeðlileg notkun á sér stað geta gestir átt von á því að þurfa að greiða aukalega fyrir rafmagnið.
    Einnig er fólk beðið að varast að setja ísskáp á hæstu stillingu. Kemur slíkt ekki að gagni og styttir líftíma ísskápsins.
  • Við hverja leigueign er sundlaug og skulu leigutakar fara varlega og fylgjast vel með börnum sínum.
  • Lyklakerfið í leigueignum er öðruvísi á Spáni en á Íslandi, í mörgum tilfellum er ekki hurðahúnn að utanverðu og því ekki hægt að opna aðalhurð að utanverðu nema með lykli þó hurð sé í raun ólæst. Ef lykill læsist inni í húsinu þarf leigutaki að greiða fyrir lyklasmið.

8. Skyldur og skuldbindingar FE

  • FE er ábyrgur fyrir því að allar upplýsingar um leigueign til SHS séu réttar.
  • FE er ábyrgur fyrir því að leiga á leigueign sé í samræmi við öll staðbundin eða innlend lög þar með talin lög um um heilsu, öryggi og tryggingar.
  • FE er ekki ábyrgur fyrir neinum beinum eða óbeinum kostnaði, tjóni eða tapi stofnað til af leigutaka eða öðrum gestum fyrir, meðan og að eftir dvöl leigutaka lýkur.
  • FE getur ekki ábyrgst bilanir eða truflanir á þjónustu eða búnaði í fasteign, né truflun vegna viðhalds sem fara fram í öðrum hluta sameignarinnar. Berist tilkynning um slíkt mun FE reyna að bregðast við slíkum málum innan hæfilegs tíma.

9. Skyldur SHS

  • Það er á ábyrgð SHS að bjóða upp á vefsíðu til að bóka fasteignir í einkaeigu. SHS er ábyrgt fyrir virkni vefsíðunnar og innihaldi hennar.
  • SHS ber ekki ábyrgð á neinum aðgerðum sem gerðar eru af öðrum hvorum aðila leigusamnings eftir að staðfesting um bókun hefur verið gerð.

10. Slys, veikindi og andlát

  • Leigutaki skuldbindur sig til að halda FE og SHS skaðlausum af öllum kostnaði.
  • Leigutaki er á Spáni á eigin vegum og ber því fulla ábyrgð á sér og gestum sínum. Á það við um öll hugsanleg slys, veikindi, andlát o.s.frv. SHS og FE eru undanþegin allri ábyrgð á því sem gæti komið fyrir leigutaka og gesti viðkomandi.
  • Bent er sérstaklega á að gæta fyllstu varúðar við sundlaugar, hálum flísum, svölum, stigum, loftkælingu, raftækjum, sturtum og öðru sem hætta gæti stafað af.

11. Höfundarréttur

  • Allt efni á heimasíðu SHS tilheyrir SHS og er allur höfundarréttur áskilinn.
  • Efnið má hvorki afrita né dreifa án skriflegs samþykkis.
  • SHS gerir fyrirvara um innsláttar- og prentvillur á útgefnu efni hvort sem er á pappír eða á vefsíðu.

12. Persónuvernd

  • SHS mun leitast við að standa vörð um friðhelgi notenda.
  • Persónuupplýsingum sem safnað er, munu aðeins vera notaðar til að bæta þjónustuna og sníða hana að þörfum notenda.
  • Hvorki SHS né FE mun selja, skipta eða leigja persónuupplýsingar til þriðja aðila eða stofnana.
  • SHS áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum fyrirvaralaust.
©Viva Fortuna ehf. kt: 510315-2270
Verslunarmiðstöðin Fjörðurinn – 2.hæð, Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfjörður
Sími + 354 558-5858 – bokun@sumarhusaspani.is
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum