VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
7 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm1
-
Hjónarúm3
LÝSING
La Regia 168
Falleg ný uppgerð (2026) efri sérhæð í raðhúslengju í La Regia hverfinu í Cabo Roig. Komið er inní stofu með borðstofu og opið inní eldhúsið. Fyrir framan íbúðina þar sem gengið er inn eru svalir sem snúa í austur. Frá einu svefnherbergi er gengið niður í flísalagðan bakgarð sem snýr í suður og suðvestur með einkasundlaug og frábærri aðstöðu til að sóla sig og slaka á. Stutt er að labba í alla helstu þjónustu, fimmtudagsmarkaðinn, verslanir, veitingastaði og niður að ströndinni í Cabo Roig.
Svefnherbergin eru þrjú
Hjónaherbergi með 160x200 hjónarúmi, fataskáp, kommóðu og loftkælingu.
Svefnherbergi með 150x200 hjónarúmi og einnig er eitt 90x200 einstaklingsrúm, kommóða og loftkæling.
Svefnherbergi með 140x200 hjónarúmi, kommóðu og loftkælingu.
Öll herbergin eru með flugnaneti í gluggum. Sængur, koddar og rúmföt fylgja fyrir gesti.
Baðherbergi
Baðherbergi með sturtu, WC, vaski og innréttingu með skúffum. Baðhandklæði fylgja leigu en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.
