VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Íbúðin er á mjög góðum stað í Cabo Roig, stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf á daginn og kvöldin. Consum matvöruverslunin er í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu. Komið er inn í opið rými þar sem er stofa með borðstofu og opið inn í eldhús, loftkæling er í stofunni. Út frá stofunni er hægt að ganga út á svalir. Eldhúsið er vel búið öllum helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er rúmgott með loftkælingu, hjónarúmi og fataskáp.
Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum, loftkælingu og fataskáp, sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergi
Gott baðherbergi með salerni, vaski, baðkar með góðri sturtuaðstöðu og hárblásara.
Baðhandklæði eru fyrir gesti, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.
Svalir, þaksvalir og sameiginleg sundlaug
Út frá stofu eru litlar svalir með borði og stólum, íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegum þaksvölum sem eru mjög rúmgóðar með gríðarlega fallegu útsýni yfir allt hverfið. Sundlaugargarður er í sameign sem gestir hafa aðgang að.