VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Á jarðhæð er stofa með borðstofu og þar er tungusófi sem einnig er svefnsófi fyrir tvö börn, í stofunni er Smart TV svo gestir geta t.d. notað sinn Netflix aðgang. Loftkæling og loftvifta er í stofunni og í húsinu er WiFi internet. Play station 3 leikjatölva er til staðar með FIFA 15. Frá stofu er gengið beint út á verönd fyrir framan þar sem eru borð og stólar. Vel búið eldhús er á jarðhæð með uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, samlokugrilli, handþeytara, brauðrist, hraðsuðukatli, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Borðbúnaður í húsinu er fyrir 6 manns og einnig er matarstóll fyrir barn. Út frá eldhúsi er gengið út á flísalagða verönd sem er að hluta til yfirbyggð þar er þvottavél, útihúsgögn, gasgrill og frábær aðstaða til að borða úti.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, loftkælingu, fataskáp og útgengi á litlar svalir með fallegu útsýni yfir garðinn, á svölunum eru borð og stólar. Gestaherbergi er á 2. hæð með loftkælingu, tveimur einstaklingsrúmum og fataskáp. Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn.
Baðherbergin eru tvö
Á fyrstu hæð er lítið salerni með WC og vaski. Á 2. hæð er gott baðherbergi með WC, vaski og baðkari með góðri sturtuaðstöðu. Baðhandklæði fyrir hvern gest þ.e.a.s. eitt stórt og eitt lítið fylgja hverri leigu, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.
Svalir, garður og sameiginleg sundlaug
Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar. Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni til sjávar. Sólbekkir eru til afnota fyrir gesti. Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug með nuddpotti, sturtur og gott pláss fyrir