VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Húsið er á mjög góðum stað í Cabo Roig innst inní botnlanga þar sem stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf alla daga og fjölmargir góðir veitingastaðir. Matvöruverslun, apótek, bankar og fleira eru í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu.
Mjög stór sameiginlegur sundlaugargarður með tveimur sundlaugum er í sameign sem gestir hafa aðgang að.
Komið er inn í opið rými með góðri stofu og borðstofu, í stofunni er góður svefnsófi fyrir 2 gesti, loftkæling, snjallsjónvarp með fjölmörgum sjónvarpstöðvum m.a. RÚV og Playstation 3 og 4 leikjatölva. Út frá stofunni er hægt að ganga út á verönd fyrir framan húsið, þar er borð, stólar, gasgrill, sólbekkir og góð aðstaða til að borða úti. WiFi internet er í húsinu.
Eldhús með uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Borðbúnaður í húsinu er fyrir 6 manns og einnig er matarstóll fyrir barn. Út frá eldhúsi er gengið út á bakverönd og þar er þvottahús og aðstaða til að hengja upp þvott og smá geymsla.
Svefnherbergin eru tvö
Herbergi á 1. hæð er með 2 einstaklingsrúmum, loftkælingu, fataskáp og kommóðu.
Hjónaherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, loftkælingu, góðum fataskápum og inn af því herbergi er baðherbergi með sturtu. Góðar svalir eru út frá hjónaherbergi þar er lítið borð og stólar.
Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn í húsinu.
Baðherbergin eru tvö
Á 1. hæð er rúmgott baðherbergi með WC, vaski og baðkari með góðri sturtuaðstöðu.
Á 2. hæð er minna baðherbergi innaf hjónaherberginu með WC, vaski og sturtu.
Baðhandklæði fylgja leigu, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.