VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm3
-
Svefnsófi1
LÝSING
Húsið er á góðum stað í La Regia hverfinu í Cabo Roig þar sem stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í Cabo Roig þar sem er mikið mannlíf alla daga og fjölmargir góðir veitingastaðir. Matvöruverslun, apótek og fleira eru í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum. Góður sameiginlegur sundlaugargarður er í sameign sem gestir hafa aðgang að með sundlaug, barnalaug og sturtu. Rúmgóð verönd ásamt svölum og þaksvölum með sólbekkjum, borði og stólum.
Stofa með loftkælingu, sófasetti, sjónvarpi, borðstofu og opið er inní rúmgott eldhús sem er vel búið með helstu áhöldum til matargerðar. Einnig er svefnsófi 150x190 og skrifborð með tölvuskjá í hluta stofu og hægt að draga þar fyrir til að nota sem svefnherbergi fyrir tvo.
Frá stofu er hægt að ganga út á veröndina við húsið sem er mjög rúmgóð með borði, stólum og kolagrilli og aðstaða til að borða úti og njóta blíðunnar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergi með 180x190cm hjónarúmi, fataskáp, loftkælingu, viftu í lofti og útgengi á góðar svalir.
Svefnherbergi með tveimur 135x190cm rúmum, fataskáp, loftkælingu, viftu í lofti og útgengi á góðar svalir.
Sængur eru í húsinu til að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Baðherbergi með salerni, vaski og sturtu er á jarðhæðinni. Á efri hæð er gott baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, salerni, vask og innréttingu.
Baðhandklæði eru fyrir gesti, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.