VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Kojur1
LÝSING
Íbúðin er á mjög góðum stað í Playamarina II íbúðarhótelinu í Cabo Roig, stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf á daginn og kvöldin. Consum matvöruverslunin er í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu. Við erum einnig með íbúð 306 og 308 við hliðina á þessari til leigu svo tilvalið fyrir fjölskyldur sem eru að ferðast saman.
Komið er inn í opið rými þar sem er falleg stofa með góðum sófa, borðstofa og opið inn í eldhús, í stofunni er smart TV með ca. 170 stöðvum. Loftkæling er í stofunni og einnig er ljósleiðara WiFi tenging. Út frá stofunni er hægt að ganga út á svalir sem snúa í suður og þaðan er síðan gengið uppá einka þaksvalir sem eru yfir allri íbúðinni með fallegu útsýni til sjávar. Á þaksvölum eru borð, stólar, sólbekkir, gasgrill og Weber kolagrill.
Eldhúsið er vel búið með Dolce Gusto kaffivél, uppþvottavél, þvottavél, brauðrist, hraðsuðukatli, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Borðbúnaður er fyrir 6 manns.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með nýju 160x200 hjónarúmi, loftkælingu og fataskáp.
Gestaherbergið er með 135x200 hjónarúmi og 90x200 koju fyrir ofan, einnig er aukadýna (90x200) sem nota má fyrir barn/ungling.
Ný færanlega loftkæling á hjólum er í gestaherberginu ásamt viftu. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergi
Gott baðherbergi með salerni, vaski, baðkar með góðri sturtuaðstöðu, hárblásari og sléttujárn. Baðhandklæði fyrir hvern gest þ.e.a.s. eitt stórt og eitt lítið fylgja hverri leigu, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.
Svalir, garður og sameiginleg sundlaug
Út frá stofu eru litlar svalir með borði og 4 stólum og fallegu útsýni til sjávar, þaðan er síðan gengið uppá stórar einka þaksvalir yfir íbúðinni með gríðarlega fallegu útsýni yfir allt hverfið og frábærri aðstöðu. Uppi á þaksvölum eru húsgögn, sólbekkir og gasgrill. Barna öryggishlið eru fyrir stiga uppi og niðri.
Mjög stór sundlaugargarður er í sameign sem gestir hafa aðgang þar, þar má finna góða sundlaug, barnalaug, sturtur og salerni og þar niðri er frábær aðstaða til að sóla sig og slaka á við sundlaugarbakkann.
Hverfið og næsta umhverfi
Frábær verðlaunuð baðströnd í Cabo Roig í 10 mínútna göngufjarlægð. Í hverfinu eru heilsugæslustöð, matvöruverslunin Consum og sérvöruverslanir, bakarí, bankar, hárgreiðslustofur svo eitthvað sé talið. Einnig er mjög skemmtilegur markaður á fimmtudögum í hverfinu. Nýja verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard er í um 5 mínútna akstursfjarlægð. Í svipaðri fjarlægð 5 - 7 mínútna akstursfjarlægð eru 4 stórir og góðir golfvellir, Villamartin, Campoamor Las Ramblas og Las Colinas