VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
LÝSING
Fallegt og sérstaklega vandað og vel búið einbýlishús með einkasundlaug á góðum stað í Las Filipinas hverfinu í Villamartin. Húsið er búið öllum nútímaþægindum og gisting er fyrir 6 manns. Flísalagður 400fm lokaður garður er kringum húsið með sundlaug sem hægt er að hita upp á vetrartíma, útihúsgögnum, borðum, stólum, sólbekkjum, sólhlíf og Weber gasgrilli.
Aðalhæð húsins er með nýuppgerðu fallegu eldhúsi sem er vel búið öllum helstu áhöldum til matagerðar og er opið inní borðstofu og stofu, þar er borðstofuborð, stólar, sófi og tveir hægindastólar ásamt sjónvarpi. Frá stofunni opnast út á svalir og þaðan eru tröppur niður í glæsilegan flísalagðan garð með einkasundlaug. Hér færðu alvöru frí þar sem þú getur notið sólarinnar, slakað á við sundlaugina og haft nægt pláss fyrir alla. Einnig er skemmtilegur púttvöllur á lóðinni fyrir golfarana.
Svefnherbergin eru þrjú
Svefnherbergið á aðalhæðinni er með hjónarúmi, fataskápum og innangent inná sér baðherbergi með sturtu.
Á efri hæð eru tvö góð herbergi, hjónasvíta með 180x200 hjónarúmi, fataskápum og annað svefnherbergi með 120x200 hjónarúmi og fataskápum. Frá efri hæð er útgengt út á svalir. Svefnherbergin öll eru með vönduðum rúmum og búin loftkælingu.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónasvítu á aðalhæðinni er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Annað baðherbergi er á efri hæð, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum. Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og hárblásari er í íbúðinni. Gestir eru beðnir um að koma með sín eigin strandhandkæði til að taka með á ströndina.
