VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
8 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
-
Kojur1
LÝSING
Skemmtilegt parhús í Las Filipinas hverfinu í Villamartin með einkasundlaug sem býður uppá gistingu fyrir sex fullorðna og tvö börn eða samtals 8 manns. Glæsileg einkasundlaug er í garðinum, ásamt sólbekkjum, sófasetti og útieldhús aðstöðu með vaski.
Aðalhæð húsins er með opnu eldhúsi með öllum helstu áhöldum til matagerðar og er opið inní borðstofu og stofu, þar er borðstofuborð, hornsófi og sjónvarp og útgengi út á litlar svalir með borði og tveimur stólum. Hér færðu alvöru frí þar sem þú getur notið sólarinnar, slakað á við sundlaugina og haft nægt pláss fyrir alla.
Svefnherbergin eru fjögur
Hjónasvíta á efri hæð er með hjónarúmi, fataskápum, sjónvarpi, loftkælingu og innangent inná sér baðherbergi með sturtu.
Á efri hæð er einnig barnaherbergi með kojum, loftkælingu og fataskáp og einnig er lítið herbergi með vinnuaðstöðu.
Á jarðhæð eru tvö góð svefnherbergi, annarsvegar hjónasvíta með hjónarúmi, sjónvarpi, loftkælingu og innangent inná sér baðherbergi með sturtu og hinsvegar herbergi með hjónarúmi og loftkælingu.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónasvítum eru baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og hárblásari er í íbúðinni. Gestir eru beðnir um að koma með sín eigin strandhandkæði til að taka með á ströndina.
