VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
7 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm1
-
Hjónarúm1
-
Kojur1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Bjart og vel búið raðhús í Aldeas de Aquamarina III garðinum í Cabo Roig. Á jarðhæð er falleg stofa með loftkælingu og svefnsófa fyrir tvo ásamt stækkanlegu borðstofuborði og stólum. Í stofunni er 49" sjallsjónvarp svo gestir geta td. horft á Netflix og fleira í gegnum netið, bækur, spil og . Í húsinu er WiFi internet í gegnum ljósleiðara. Frá stofunni er verönd með sófasetti og sólbekkjum og stutt að rölta út að sundlauginni sem er beint á mótu sundlauginni.
Eldhús er á jarðhæð með uppþvottavél, örbylgjuofni, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, samlokugrilli, hraðsuðukatli, Nutribullet blandara, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Út frá eldhúsi er flísalögð verönd með borði, stólum, sólhlíf og Weber gasgrilli - einnig er þvottavél og aðstaða til að hengja upp þvott.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, loftkælingu, fataskáp og útgengi á litlar svalir með fallegu útsýni.
Gestaherbergi er á 2. hæð með koju fyrir tvö börn og einu einstaklingsrúmi með vönduðum dýnum svo gisting fyrir þrjá, loftkælingu, fataskáp og kommóðu.
Í húsinu eru sængur sem gott að nota á vorin og haustin, einnig eru sumarsængur, barnaferðarúm og matarstóll.
Baðherbergin eru tvö
Á jarðhæð er lítið salerni með WC og vaski, hárblásari og sléttujárn er í húsinu.
Á 2. hæð er gott baðherbergi með WC, vaski, innréttingu og baðkari með góðri sturtuaðstöðu.
Baðhandklæði fyrir hvern gest þ.e.a.s. eitt stórt og eitt lítið fylgja hverri leigu.
Svalir, garður og sameiginleg sundlaug
Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar. Á þriðju hæð hússins eru stórar þaksvalir með útsýni til sjávar.
Fjórir sólbekkir eru til afnota fyrir gesti. Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug með nuddpotti, sturtur og gott pláss fyrir sólbekki.