VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Barnaferðarúm2
LÝSING
Raðhúsið er á mjög góðum stað í Cabo Roig þar sem stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf alla daga. Consum matvöruverslunin er í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu.
Á jarðhæð er falleg stofa með sófa og borðstofu, loftkæling og loftvifta er í stofunni og í húsinu er WiFi internet. Út frá stofunni er hægt að ganga beint út á verönd fyrir framan íbúðina þar sem eru borð og stólar. Bjart og vel búið eldhús er á jarðhæð með uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar. Út frá eldhúsi er hægt að ganga út á flísalagða verönd þar er þvottavél, útihúsgögn, gasgrill og frábær aðstaða til að borða úti.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergi með hjónarúmi, loftkælingu, fataskáp og útgengi á litlar svalir með fallegu útsýni yfir garðinn, á svölunum eru borð og stólar.
Gestaherbergi einnig með hjónarúmi, loftkælingu og fataskáp. Gott auka einstaklinsgrúm er einnig til staðar sem hægt er að setja upp fyrir einn fullorðin. Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn og vönduð loftdýna fyrir krakka.
Baðherbergin eru tvö
Á jarðhæð er lítið salerni með WC og vaski.
Á 2. hæð er gott baðherbergi með WC, vaski og baðkari með góðri sturtuaðstöðu.
Baðhandklæði fyrir gesti fylgja leigu, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.
Svalir, garður og sameiginleg sundlaug
Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar. Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni til sjávar. Sólbekkir eru til afnota fyrir gesti.
Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug með nuddpotti, sturtur og gott pláss fyrir sólbekki.