VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á jarðhæð í glænýjum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin, WiFi, gasgrill, loftkæling og allt til alls. Rúmgóðar verandir eru fyrir framan og aftan íbúðina. Þrír fallegir sundlaugargarðar eru inná milli húsana og hafa gestir aðgang að þeim öllum, hverfið er mjög rólegt og gott. Veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.
Við aðalinngang er flísalögð verönd með fallegum húsgögnum og þaðan er gengið beint inn í opið rými með fallegri stofu sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, Smart TV, loftkæling og moskitó net í hurð svo hægt er að hafa opið út án þess að fá flugur inn. Eldhúsið er bjart og vel búið og þaðan er síðan þvottahús/geymsla. Í eldhúsinu er stór ísskápur með góðu frystihólfi, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, samlokugrill, hraðsuðuketill og öll helstu áhöld til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni, gistirými er því fyrir 4-6 manns og einnig er barnaferðarúm.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi sem er með sturtu. Einnig er gott sjónvarp uppá vegg í hjónaherberginu.
Gestaherbergið er með 140cm hjónarúmi, litlu skrifborði, sjónvarpi og góðum fataskáp.
Bæði svefnherbergin eru með nýjum rúmum, loftkælingu og einnig eru moskitó net fyrir gluggum/hurðum, sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergin eru tvö
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er innaf hjónaherbergi.
Hitt baðherbergið er einnig með salerni, vaski, sturtu og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja hverri leigu, eitt stórt og eitt lítið fyrir hvern gest og einnig er hárblásari í húsinu.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Stór einka verönd, sundlaugargarðar og leiktæki
Gengið er út úr stofunni á rúmgóða 39fm flísalagða verönd sem snýr að sundlaugargarðinum og þar eru 4 sólbekkir, útihúsgögn og Weber gasgrill.
Einnig er flísalögð 24fm verönd fyrir aftan húsið og þar er hægt að njóta kvöldsólarinnar. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta.
Í sameign Terrazas eru þrír garðar inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru 2 stórar sundlaugar, barnalaug, vaðlaug, líkamsræktartæki, leiksvæði fyrir börn og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta. Garðarnir eru einstaklega fallegir og mjög fjölskylduvænir.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með fleiri íbúðir í Terrazas kjarnanum til leigu, frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.
Einnig erum við með Einbýlishús og raðhús í ca. 5 mín göngufæri frá Terrazas.