VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Glæsilegt og vel útbúið raðhús í lokuðum kjarna, húsið stendur við botngötu í rólegu hverfi. Húsið er á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Sameiginleg sundlaug, heitur pottur og þaksvalir. Húsið er í Lomas de Cabo Roig hverfinu og í nágrenninu eru matvörubúðir og veitingastaðir t.d. í Lomas de Cabo Roig Center og La Fuente kjarnanum. Stutt er að keyra í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.
Húsið er vel búið öllum nútímaþægindum í aflokuðum garði og einkabílastæði er við hlið hússins. Í stofunni er góður sófi, sjónvarp, WiFi, loftkæling og borðstofuborð með stólum. Eldhúsið er vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar. Falleg flísalögð verönd er út frá stofunni með útiborði, stólum, gasgrilli og sófasetti. Frá veröndinni er gengið út í sameiginlega sundlaugargarðinn með sundlaug, útisturtu og sólbekkjum.
Rúmgóðar þaksvalir eru yfir húsinu með fjórum sólbekkjum, sófasetti og heitum potti.
Svefnherbergin eru þrjú
Öll svefnherbergin eru með vönduðum Pikolin rúmum og loftkælingu/hitun. Undir öllum rúmum eru geymsluhólf fyrir til dæmis ferðatöskurnar. Á efri hæð eru tvö herbergi bæði með baðherbergi innaf. Annað er með 150x200 hjónarúmi og fataskáp. Hitt herbergið er með 180x200 hjónarúmi, fataskáp og útgengi út á svalir með borði og stólum, þaðan er gengið uppá þaksvalirnar. Á fyrstu hæð er svefnherbergi með 150x200 hjónarúmi, stórum fataskáp og hægt að ganga út á litla verönd með borði og stólum.
Baðherbergin eru þrjú
Þrjú baðherbergi eru í húsinu, öll með sturtu, salerni og vaski. Í húsinu eru til staðar baðhandklæði en gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og á ströndina.
Stutt verslanir, í golf, fjölbreyttar gönguleiðir og strandlífið
Frá húsinu er um 20 mín gangur/4 mín akstur að Zenia Boulevard mollinu. Um 12 mín. gangur er á fjölda veitingastaða í Lomas de Cabo Roig Center. Mikið úrval af skemmtilegum golfvöllum er í næsta nágrenni við húsið, innan 30 km radíusar eru alls um 17 golfvellir t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca og fleiri. Húsið er því tilvalið fyrir golfara sem vilja reyna fyrir sér á fyrsta flokks golfvöllum í frábæru veðri og dekra vel við sig.
Ströndin er í um 3km fjarlægð þar sem eru fjölbreyttir og skemmtilegir veitingastaðir, falleg sandströnd, skemmtilegt strandlíf og göngustígar meðfram allri ströndinni. Hér færðu alvöru frí þar sem þú getur notið sólarinnar og slakað á við sundlaugina.
