VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
8 manns -
Svefnherbergi4
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm3
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Vorið 2026 verður sett upphitanleg einkasundlaug í garðinn og allt útisvæði flísalagt upp á nýtt. Um leið og framkvæmdum líkur munum við setja inn nýjar myndir af sundlauginni og útisvæðinu.
Húsið er afar vel staðsett í Cabo Roig þar sem stutt er upp á göngugötuna í hverfinu. Þar er mikið mannlíf alla daga. Flottir veitingastaðir og barir. Ströndin er í göngufæri. Europa og Consum matvöruverslanirnar eru einnig í göngufæri og svo má finna líflegan markað á fimmtudögum í hverfinu.
Falleg stofa með tungusófa ásamt stækkanlegu borðstofuborði og 8 stólum. Snjallsjónvarp og PlayStation 4 leikjatölva með tveimur fjarstýringum og leikjum. Í húsinu er WiFi gegnum ljósleiðara og rúmlega 120 sjónvarpsstöðvar í boði. Borðspil eru til afnota fyrir gesti. Loftkæling er í stofunni. Frá stofunni er gengið út í stóran, flísalagðan garð sem snýr í suður og austur. Öryggiskerfi er til staðar.
Vel búið eldhús með uppþvottavél, ísskáp með frystihólfi, Nespresso Vertuo kaffivél, brauðrist, samlokugrilli, hraðsuðukatli, Ninja blandara og öllum helstu áhöldum til matargerðar ásamt neysluvatnskrana. Út frá eldhúsi er gengið út í bakgarðinn. Þar má finna Weber Q3200 gasgrill, þvottavél, örbylgjuofn, þurrkgrind, innkaupakerru og auka kæliskáp fyrir drykki. Þaðan er einnig hægt að ganga út í pergóluna við húsið.
Svefnherbergin eru fjögur
Svefnherbergi 1: Á jarðhæð er rúmgott herbergi. Hjónarúm 140x200, kommóða og snjallsjónvarp.
Svefnherbergi 2: Er á annari hæð. Hjónarúm 160x200, fataskápur, stór kommóða og fallegar suðursvalir með sjávarsýn. Innangengt er inn á baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi 3: Er á annari hæð. Hjónarúm 140x200, fataskápur. Innangengt inn á sér baðherbergi með stórri “walk in” sturtu.
Svefnherbergi 4: Lítið risherbergi á efstu hæð með tveimur einstaklingsrúmum 90x200 og loftkælingu.
Öll svefnherbergin eru með loftkælingu og moskító net er fyrir gluggum. Sængur eru í húsinu sem gestir geta notað á haustin og vorin eða eftir þörfum. Koddar og rúmföt fylgja. Einnig eru 2 góð barnaferðarúm með sæng og kodda fyrir ungabarn og matarstóll.
Baðherbergin eru þrjú
Á jarðhæð er baðherbergi með sturtuklefa, salerni og vaski.
Á 2. hæð eru tvö baðherbergi – inn af hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og vaski.
Inn af hinu svefnherberginu er gott baðherbergi með “walk in” sturtu, salerni og vaski.
Baðhandklæði fylgja en gestir eru beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari og sléttujárn er í húsinu. Einnig fylgja 4 strandstólar, sólhlíf, kælitaska og kælibakpoki sem tilvalið er að taka með niður á strönd.
Einkasundlaug, pergóla, svalir, garður og sameiginleg sundlaug.
Glæný (2026) einkasundlaug 5.5 x 3.00 og 1.40 að dýpt. Sundlaugin er upphitanleg sem er tilvalið yfir vetrartímann.
Mjög stór einkagarður sem snýr í suður og austur er við húsið. Garðurinn var allur tekinn í gegn vorið 2026, flísalagður upp á nýtt og sett falleg einkasundlaug með spa palli og útisturtu. Einnig er yfirbyggð pergóla með lokanlegum hliðum. Tilvalið útisvæði til að borða, spila og njóta í skjóli og skugga.
Þar er stækkanlegt borð, 8 stólar, 6 sólbekkir og frábær aðstaða til að njóta blíðunnar á Spáni, grilla góðan mat og sóla sig. Á annarri hæð eru suðursvalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar og einnig litlar austursvalir með sjávarsýn frá ganginum.
Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni til sjávar.
Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug, nuddpottur og sturtur.
