VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
LÝSING
Glæsileg og vel útbúin íbúð á jarðhæð, íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þvottahús, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Íbúðin er mjög vel staðsett, nálægt golfvöllum, La Zenia Boulevard mallinu, veitingastöðum, La Zenia ströndinni og allri helstu þjónustu. Nútímaleg íbúð umkringd stórri sundlaug, tveimur nuddpottum og barnasundlaug. Fallegur garður sem er tilvalinn til að sleikja sólina. Eigninni fylgir sér bílastæði í lokuðum bílakjarna. Frá stofu er gengið út á flísalagða verönd með góðum útihúsgögnum og WEBER rafmagnsgrilli, í framhaldi er gervigras með golfholu þar sem tilvalið er að æfa púttinn fyrir komandi golfhring à þeim glæsilegu golfvöllum sem eru í boði à svæðinu. Íbúðin er með flísum á gólfum, gólfhita á baðherbergjum. Í þessari eign er vatnsfilter sem þýðir að þú getur drukkið vatnið beint úr krananum. Í stofunni er Smart TV með íslenskum stöðvum og enska boltanum.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, hjónaherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum. Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum og góðum fataskáp. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin. Íbúðin er eingöngu fyrir að hámarki fyrir 4 gesti.
Baðherbergin eru tvö
Tvö baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu, annað þeirra innaf hjónaherbergi.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með á ströndina
Villamartin hverfið og aðrar eignir stutt frá
Íbúðin er vel staðsett í Villamartin þar sem stutta er í alla afþreyingu og þjónustu. Veitingastaðir og verslanir í göngufæri og La Zenia verslunarsmiðstöðin rétt hjá. Við erum með tvær íbúðir í GALA kjarnanum sem er tilvalið fyrir fjölskyldur eða stærri hópa að bóka saman. Einnig erum við með íbúðir stutt frá í Villamartin Gardens, Mirador, Green Hills og Vista Azul svo dæmi sé tekið og er stutt að labba á milli þeirra. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.