VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
LÝSING
Fallegt og vel búið einbýlishús á góðum stað við Santa Rosalia Lake and life Resort baðlónið sem er lokað svæði með öryggisgæslu. Svæðið er búið fjölbreyttri afþreyingu ýmis konar s.s. strandblakvellir, fótbolta- og körfuboltavellir, þá er mjög skemmtilegur par 3 æfingavöllur ásamt golf æfingasvæði, líkamsrækt og fleira. Svo ekki sé minnst á lónið sjálft sem er stærsta manngerða baðlón í Evrópu. Við lónið er einnig glæsilegur veitingastaður. Santa Rosalia Lake and life Resort svæðið er rétt fyrir utan strandbæinn Los Alcazares en bærinn er við hið rómaða Mar Menor innhaf sem er með skemmtilegri baðströnd og öllu því fjölbreytta mannlífi og afþreyingu sem spænskum baðströndum fylgir.
Húsið er mjög vel búið öllum nútímaþægindum. Stór garður er við húsið með flísalagðri verönd þar sem sólar nýtur allan daginn, þar er útiborð og stólar, útisófasett, Weber gasgrill og markísa. Að auki eru tvennar svalir með fallegu útsýni yfir svæðið með sólbekkjum og heitum potti, stutt er að labba að fallega baðlóninu frá húsinu. Í stofunni er góður tungusófi, snjallsjónvarp, WiFi, loftkæling og borðstofuborð með stólum og einnig eru barstólar við eldhúseyjuna. Eldhúsið er bjart og vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru þrjú öll með sér baðherbergjum
Öll svefnherbergin eru með vönduðum rúmum og loftkælingu/hitun. Á efri hæð er mjög rúmgóð hjónasvíta með 180cm hjónarúmi, fallegu fataherbergi, sér baðherbergi innaf og útgengi út á svalir með heitum potti. Á jarðhæð eru tvö rúmgóð gestaherbergi með góðum fataskápum og 160 cm hjónarúmi. Bæði svefnherbergin hafa sér baðherbergi innaf.
Þrjú baðherbergi eru í húsinu og eru þau öll innaf svefnherbergjum, með salerni, vaski, sturtu, innréttingu og gólfhita. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með að baðlóninu og á ströndina.
Santa Rosalia svæðið og golfið allt í kring
Santa Rosalia Lake and life Resort baðlónið er ca. 4 km. utan við strandbæinn Los Alcázares sem liggur að Mar Menor, einu stærsta innhafi Evrópu. Innan svæðissins er fjöldi tækifæra til útivistar og afþreyingar, mini golf, leikvellir, blak, jógasvæði, tennis, strandbar, göngu og hjólastígar ásamt líkamsræktarstöð. Meðfram strandlengjunni við Los Alcazares liggur 7 km göngugata (promenade) en þar er mikið líf allt árið um kring. Í Los Alcazares búa um 17 þúsund manns en á sumrin eru um 100 þúsund manns í bænum þegar ferðamannastraumurinn nær hámarki. Svæðið býður upp á úrval frábærra veitingastaða og mikla spænska menningu þar sem innfæddir búa þar allt árið um kring. Þrjár stórar verslunarmiðstöðvar eru í 10-20 mínútna akstursfjarlægð frá Santa Rosalia svæðinu. Um 25 og 35 mínútur tekur að keyra til sögufrægu borganna Cartagena og Murcia og um 50 mínútur til Alicante flugvallarins.
Paradís Golfara
Húsið er tilvalið til leigu fyrir golfara sem vilja blanda saman góðri slökun og golfi þar sem stutt er á marga góða golfvelli og má þar nefna mjög nálæga velli eins og Roda golf og La Serena sem hafa jafnframt mjög góð æfingasvæði. Mar Menor golfvöllurinn er við hlið svæðisins í fárra mínútna fjarlægð og stutt er á Hacienda Riquelme, El Valle, Lo Romero, Saurines, Villamartin, Las Colinas og fleiri. Í Murcia sýslu þar sem bærinn Los Alcazares er staðsettur, eru 22 golfvellir.
Hafa ber í huga við leigu á þessari eign að Santa Rosalia svæðið er enn að hluta til í byggingu og töluverðar framkvæmdir í gangi á svæðinu með tilheyrandi raski.