VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
10 manns -
Svefnherbergi4
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm3
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Fallegt og vel búið einbýlishús með einkasundlaug á góðum stað við Santa Rosalia Lake and life Resort baðlónið sem er lokað svæði með öryggisgæslu. Svæðið er búið fjölbreyttri afþreyingu ýmis konar s.s. strandblakvellir, fótbolta- og körfuboltavellir, þá er mjög skemmtilegur par 3 æfingavöllur ásamt golf æfingasvæði, líkamsrækt og fleira. Svo ekki sé minnst á lónið sjálft sem er stærsta manngerða baðlón í Evrópu. Við lónið er einnig glæsilegur veitingastaður. Santa Rosalia Lake and life Resort svæðið er rétt fyrir utan strandbæinn Los Alcazares en bærinn er við hið rómaða Mar Menor innhaf sem er með skemmtilegri baðströnd og öllu því fjölbreytta mannlífi og afþreyingu sem spænskum baðströndum fylgir. Santa Rosalia svæðið er nýtt og enn að hluta til í byggingu.
Húsið er búið öllum nútímaþægindum og gisting er fyrir 10 manns. Stór lokaður garður er við húsið með sundlaug sem hægt er að hita upp á vetrartíma, flísalagðri verönd, útihúsgögnum, borðum, stólum, sólbekkjum, Weber gasgrilli og kolagrilli. Að auki eru svalir og þaksvalir á húsinu einnig með húsgögnum, pergólu og grilli.
Aðalhæð húsins er með fallegu opnu eldhúsi sem er vel búið öllum helstu áhöldum til matagerðar og er opið inní borðstofu og stofu, þar er borðstofuborð, stólar, sófi og tveir hægindastólar ásamt 65” LG snjall TV með apple TV. Frá stofunni eru stórar rennihurðar sem opnast út í garðinn. Hér færðu alvöru frí þar sem þú getur notið sólarinnar, slakað á við sundlaugina og haft nægt pláss fyrir alla
Skemmtilegur kjallari er í húsinu með einu svefnherbergi, baðherbergi og mjög stóru alrými, Það er stór og góður hornsófi sem einnig er svefnsófi fyrir tvo gesti, 83” LG snjall TV með apple TV, PS5 leikjatölva, píluspjald, taflborð og fleira skemmtilegt fyrir stórfjölskylduna að njóta. Í húsinu er barnaferðarúm og matarstóll.
Svefnherbergin eru fjögur, ásamt svefnsófa í kjallara
Svefnherbergið á aðalhæðinni er með 160x200 hjónarúmi, fataskápum og innangent inná sér baðherbergi.
Á efri hæð eru tvö góð herbergi, hjónasvíta með 180x200 hjónarúmi, fataskápum og sér baðherbergi með sturtu og annað svefnherbergi með 160x200 hjónarúmi og fataskápum. Frá báðum þessum herbergjum á efri hæð er útgengt út á svalir.
Í kjallara húsins er fjórða svefnherbergið með tveimur 90x200 einstaklingsrúmum og fataskáp. Svefnherbergin öll eru með vönduðum rúmum og búin loftkælingu.
Baðhandklæði fylgja en gestir þurfa að hafa sín eigin handklæði fyrir og til að taka með niður að lóni eða á ströndina
Los Alcazares og svæðið þar í kring er paradís golfarans
Santa Rosalia svæðið er í Murcia héraðinu og er rétt um 4km fyrir utan Los Alcazares sem er skemmtilegur bær við ströndina meö fjölda veitingastaða vestan megin við Mar Menor (litla hafið) sem er stærsta saltvatnslón Evrópu. Mar Menor er tengt við Miðjarðarhafið en er venjulega 2-4 gráðum heitara en Miðjarðarhafið. Mar Menor er því mjög vinsælt fyrir áhugafólk um strandarlíf og vatna íþróttir ýmiss konar.
Í um 20-30 mínútna akstursfjarlægð frá Santa Rosalía svæðinu er fjöldi góðra golfvalla þar má nefna Roda Golf, La Serena Golf og Mar Menor golf sem eru í nokkra mínútna akstursfjarlægð. Svæðið er því sannkölluð paradís golfarans og hentar þeim vel sem vilja blanda saman góðri slökun, golfi og skemmtilegu strandlífi.
