VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
LÝSING
Íbúðin er í Oasis Beach VI kjarnanum sem er beint á móti La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, Laugardagsmarkaðinn, fjölmarga golfvelli og yfir í La Zenia verslunarmiðstöðina. Einnig fylgir aðgangur að bílastæði í bílakjallara fyrir bílaleigubílinn. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar. Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er sófi sem einnig er svefnsófi og snjallsjónvarp svo geta gestir t.d. skráð sig inná sitt NETFLIX. Frá stofu er rennihurð út á veröndina sem snýr í suður og er beint á móti sundlaugargarðinum, þar eru stólar, borð, tveir sólbekkir og frábær aðstaða til að njóta blíðunnar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, fataskáp og innangengt er inná baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergið er með einnig með hjónarúmi, fataskáp, kommóðu og loftkælingu.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er einnig með sturtu, salerni, vaski og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari í íbúðinni.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Suður verönd, sundlaugargarður og leiksvæði fyrir börnin
Frá stofu eru rennihurð út á flísalagða verönd með borði, stólum og sólbekkjum, þaðan er síðan gengið beint út í sundlaugargarðinn. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Í sameign er sundlaugargarður með sundlaug, sturtum, leiksvæði fyrir börnin, borðtennisborði og mjög flottu opnu svæði í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni, garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.