VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
-
Svefnsófi1
LÝSING
Neðri sérhæð í Vistabella hverfinu með aðgengi að fallegum sameiginlegum sundlaugargarði með tveimur sundlaugum. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, háhraða WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Matvöruverslun, veitingastaðir, barir, apótek, hárgreiðslustofa, líkamsrækt og önnur þjónusta er í göngufæri við íbúðina og Vistabella golfvöllurinn í göngufæri 1 km frá íbúðinni.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Eldhúsið er vel búið með helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru þrjú
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum sem eru öll með góðum 160x200 hjónarúmum, loftkælingu og góðum fataskápum.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann. Einnig er svefnsófi í íbúðinni sem hentar fyrir 1-2 börn.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergi er með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd og sundlaugargarður
Frá stofu er rennihurð sem opnar út á flísalagða verönd og garð, þar eru sólbekkir, borð, stólar og Weber gasgrill. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Veröndin snýr í suðurátt og frá henni er beint aðgengi að tveimur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.