VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Falleg neðri sérhæð í Vista Azul XXV í Lomas de Cabo Roig hverfinu, mjög góður aðbúnaður er í íbúðinni, gólfhiti sem og loftkæling. Rúmgóð verönd er beggja vegna við húsið frá stofu/eldhúsi og við aðalinngang íbúðarinnar með vönduðum útihúsgögnum, sólbekkjum, markísu og gasgrilli, gengið er beint út að sundlauginni frá verönd við húsið en aðgangur er að tveimur sundlaugum í sameigninni.
Matvöruverslunin Iceland er í göngufæri ásamt veitingastöðum, bensínstöð og börum þar sem meðal annars er hægt að horfa á fótboltaleiki og hlusta á lifandi tónlist. Það er stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn og laugardagsmarkaðinn, í La Zenia mollið og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig hefur þjónusta í hverfinu aukist mikið á síðastliðnum árum og mjög góðir veitingastaðir komið sér fyrir.
Komið er inní opið rými með fallegri stofu, borðstofu og eldhúsi. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi og sjónvarp. Loftkæling er í stofunni og einnig er WiFi internet. Eldhúsið er opið yfir í stofu það er bjart og vel búið með ísskáp með frystihólfi. Í eldhúsinu er uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðuketill og öll helstu áhöld til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt inná baðherbergi með sturtu. Gestaherbergi er með tveimur einstaklingsrúmum og fataskáp. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og vönduðum rúmum. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergin eru tvö
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu. Baðhandklæði og rúmföt fylgja leigu, einnig er hárblásari.
Sundlaugargarður í sameign
Stór sameiginlegur sundlaugargarður er inn á milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar er sundlaug með barnalaug, sturtur og frábær aðstaða til að sóla sig og njóta. Garðurinn er einstaklega fallegur mjög fjölskylduvænn og húsið er vel staðsett í garðinum.