VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi1
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Íbúðin er í Villamartin Park kjarnanum sem samanstendur af 3 fjölbýlishúsum sem allar hafa aðgengi að sameiginlegri sundlaug og sameiginlegum þaksvölum. Staðsett aðeins nokkrum mínútum frá Villamartin Plaza þar sem er mikið úrval af veitingastöðum og skemmtunum. Stóra verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard er í um 10 mínútna akstri frá íbúðinni. Stutt er í nokkra golfvelli. Þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor og Las Ramblas sem allir eru í minna en 3km radíus frá íbúðinni.
Íbúðin er á jarðhæð og er mjög vel búin með öllu sem þarf á meðan dvalið er í eigninni. Það er mjög sólrík verönd fyrir framan íbúðina sem snýr í suður.
Björt og hlýleg stofa sem er einnig borðstofa og opið í eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem er einnig svefnsófi 140 x 190 cm. stærð. Eldhúsið er full búið með ísskáp, neysluvatnskrana, uppþvottavél, þvottavél, kaffivél, hraðsuðuketil, brauðrist og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergið er eitt
Íbúðin er með einu svefnherbergi og í stofunni er svefnsófi. Því býður íbúðin uppá gistirými fyrir 4 manns. Svefnherbergið er með 160x190 hjónarúmi, góðum fataskáp, loftræstikerfi sem kælir/hitar og sjávarútsýni.
Baðherbergið er eitt
Íbúðin er með einu baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Baðhandklæði fylgja leigu og einnig er hárblásari til staðar. Einnig eru sér sundlaugarhandklæði til staðar í íbúðinni sem gestir hafa afnot af til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd, þaksvalir og sameiginlegur sudlaugargarður
Veröndin snýr í suður og þar eru útihúsgögn og gasgrill.
Í sameigninni er sundlaugargarður með 1 sundlaug í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar er sundlaug, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, sturtur og salerni. Frábær aðstaða til að sóla sig og njóta blíðunnar á Spáni.
Einnig eru sameiginlegar þaksvalir em gestir hafa aðgang að. Hægt er að taka lyftu alla leið upp á svalirnar og þar eru borð og stólar, pergólur og 2x kolagrill sem gestir geta tekið frá/leigt og notað. Einnig er salerni á þaksvölunum sem gestir hafa aðgang af svo þeir þurfi ekki að fara í íbúðina. Æðislegt útsýni yfir Miðjarðarhafið og til fjalla og frábær sólbaðsaðstaða. Þar er einnig geymsla sem gestir hafa aðgang að þar sem eru sólbekkir. Einnig er nóg pláss til þess að geyma golfsett og fleira í þessarri geymslu ef gestir vilja.