VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er í Recidencial Villamartin Gardens kjarnanum sem samanstendur af níu fjölbýlishúsum sem allar hafa aðgengi að þremur sundlaugum, þar af er ein upphituð yfir vetrartímann. Íbúðin er vel skipulögð og mjög vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Stórar og flottar svalir sem snúa í suður er út frá stofunni. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir lokuð bílageymsla með fjarstýringu sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi og snjallsjónvarp með áskriftarpakka með breskum og spænskum stöðvum og Bluetooth hátlari. Frá stofu er rennihurð út á frábærar flísalagðar svalir með borði, sex stólum, fjórum sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, klakavél, samlokugrilli, hraðsuðukatli, kæliboxi fyrir ströndina og helstu áhöldum til matargerðar.
Þvottahús er innaf eldhúsi með þvottavél og smá geymslu.
Svefnherbergin eru þrjú
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum með fataskápum og loftkælingu, einnig er barnaferðarúm.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu.
Tvö svefnherbergi eru síðan á gangi innaf stofunni, annað með hjónarúmi og hitt með tveimur einstaklingsrúmum.
Öll svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er á gangi þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Stórar svalir og þrjár sundlaugar þar af ein yfirbyggð og upphituð á vetrartíma
Hægt að ganga út á glæsilegar flísalagðar svalir frá stofu og eldhúsi, svalirnar snúa í suður og þar eru 4 sólbekkir, Weber gasgrill, borð og stólar fyrir 6 manns.
Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að grilla, borða úti og njóta blíðunnar.
Í sameign á milli húsanna er sundlaugargarður með þremur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru þrjár stórar sundlaugar og þar af ein yfirbyggð og upphituð á veturna, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktartæki, Petanque völlur og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með aðra íbúð í Villamartin Gardens kjarnanum og einnig í Mirador de Villamartin og Green Hills sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.