VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Valentino Golf III nr. 102
Glæsileg íbúð á efstuhæð með 20fm suðursvölum út frá stofu og svefnherbergjum, einnig eru 80fm þaksvalir og aðgangur að sameiginlegri sundlaug fyrir kjarnann. Komið er inn í bjart alrými þar sem gott eldhús er opið yfir í borðstofu og stofu. Frá stofu er gengið út á flottar 20fm svalir sem snúa í suður með borði og stólum.
Svefnherbergin eru þrjú
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum og er aðal hjónaherbergið með góðu baðherbergi með sturtu innaf. Svefnherbergin eru öll með loftkælingu, góðu skápaplássi og öll hafa þau útgengi út á svalirnar, sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.
Svalir, þaksvalir og hverfið
20fm svalir sem snúa í suður eru út frá stofunni og öllum þremur svefnherbergjum, einnig er innangengt frá íbúðinni uppá rúmgóðar 80fm þaksvalir með hornsófasetti sem hægt er að borða við, fjórum vönduðum sólbekkjum og útisturtu. Frá íbúðunum er um 15 min rölt í þjónustukjarnann Villa Martin Plaza þar sem finna má úrval veitingastaða, matvörubúð, barir, apótek og margt fleirra. Um 10 min akstur niður í verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard og um 15 min akstur niður á strendur miðjarðarhafsins. Aðeins um 5 min keyrsla á 3 golfvelli - Villa Martin - Las Ramblas og Campoamor - en úrval annarra golfvalla í um 20 min akstri. Í þessum kjarna erum við með fjórar íbúðir, tvær á jarðhæð sem báðar hafa einkasundlaug og tvær á efstu hæð með rúmgóðum þaksvölum. Frábær valkostur er stórfjölskyldan eða vinahópurinn er að ferðast saman.