VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á annari hæð með góðum svölum í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin. Þrír fallegir garðar eru inná milli húsana með sundlaugum, heitum potti, leiksvæði fyrir börnin, líkamsræktartækjum og hafa gestir aðgang að þeim öllum. Hverfið er mjög rólegt og gott, veitingastaðir og matvörubúð eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig eru margir golfvellir stutt frá hverfinu td. Campoamor, Villamartin, Las Colinas og Las Ramblas.
Gengið beint inn í opið rými með fallegri stofu sem einnig er borðstofa og eldhús. Í stofunni er sófi, sjónvarp með fullt af sjónvarpsstöðvum m.a. RÚV, loftkæling og fallegt borðstofuborð með fjórum stólum. Frá stofunni er gengið út á góðar svalir með fallegu útsýni yfir garðinn, á svölum eru borð, stólar og tveir hægindastólar ásamt skammel.
Eldhúsið er bjart og vel búið og þaðan er síðan gengið inní þvottahús/geymslu. Í eldhúsinu er uppþvottavél, örbylgjuofn, kaffivél, brauðrist, hraðsuðuketill og öll helstu áhöld til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni, gistirými er því fyrir 4-6 gesti.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtuklefa. Frá hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út á svalirnar.
Gestaherbergið er með 2 einstaklingsrúmum og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum. Einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu, hárblásara og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja leigu, eitt stórt og eitt lítið fyrir hvern gest.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.
Svalir og sundlaugargarðar með leikvelli
Gengið er út úr stofunni á fallegar svalir sem snúa í suður með útsýni yfir sundlaugargarðinn. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta.
Í sameign Terrazas eru 3 garðar inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.
Þar eru 2 stórar sundlaugar, heitur pottur, barnalaug, vaðlaug, líkamsræktartæki, leiksvæði fyrir börn og sturtur.
Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta. Garðarnir eru einstaklega fallegir og mjög fjölskylduvænir.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum með fleiri íbúðir í Terrazas kjarnanum til leigu, frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.
Einnig erum við með nokkur einbýlishús og raðhús í ca. 5 mín göngufæri frá Terrazas.