VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á fyrstu hæð með suðursvölum í glænýjum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin. 3 fallegir garðar eru inná milli húsana með sundlaugum, heitum potti, leiksvæði fyrir börnin, líkamsræktartækjum og hafa gestir aðgang að þeim öllum. Hverfið er mjög rólegt og gott, veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig eru margir golfvellir stutt frá hverfinu eins og Campoamor, Villamartin, Las Colinas og Las Ramblas.
Komið er inn í anddyri með góðum forstofuskáp og opið inní fallega stofu sem einnig er borðstofa. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, hægindastóll, snjallsjónvarp með erlendum sjónvarpsstöðvum, Mi Box (með því getur þú á einfaldan hátt notað forrit eins og Netflix, Plex, Kodi, Youtube og Spotify), WiFi internet, loftkæling og borðstofuborð með sex stólum. Frá stofunni er gengið út á flottar svalir með borði, fjórum stólum, tveimur sólbekkjum, gasgrilli og flottu útsýni yfir sundlaugargarðinn. Eldhúsið er bjart og vel búið og þaðan er síðan gengið inní þvottahús/geymslu. Í eldhúsinu eru öll helstu áhöld til matargerðar. Neysluvatnskrani er í eldhúsi.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni, gistipláss er því fyrir 4-6 gesti og einnig er barnaferðarúm með sæng og kodda fyrir 0-2 ára barn.
Hjónherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og viftu í loftinu. Frá hjónaherbergi er hægt að ganga út á svalirnar. Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum og góðum fataskáp. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.
Baðherbergi
Fallegt baðherbergi með salerni, vaski, sturtu, hárblásara og innréttingu. Baðherberginu er skipt upp með lokuðum rennihurðum svo hægt er að nota sturtu og salerni á sama tíma.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Svalir og frábærir sundlaugargarðar í sameign
Gengið er út úr stofunni á fallegar svalir sem snúa í suður og með útsýni yfir sundlaugargarðinn. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta. Borð með fjórum stólum og Weber gasgrill er á svölunum. Einnig er íbúðin með tvo sólbekki sem hægt er að taka með niður að sundlauginni eða hafa úti á svölum.
Í sameign Terrazas eru þrír garðar inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru tvær stórar sundlaugar, barnalaug, vaðlaug, volgur pottur, líkamsræktartæki, leiksvæði fyrir börn og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta. Garðarnir eru einstaklega fallegir og mjög fjölskylduvænir.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með fleiri íbúðir í Terrazas kjarnanum til leigu, frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman. Einnig erum við með Einbýlishús og raðhús í ca. 5 mín göngufæri frá Terrazas.