VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
8 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm2
LÝSING
Komið er inní stofu sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið sem er vel búið öllum helstu áhöldum til matargerðar, frá stofunni er gengið út í garðinn þar eru sólbekkir, borð, stólar, sólhlíf, markísa og úti gashitari fyrir vorin og haustin. Á efsta palli er skrifborð með tölvuskjá, lyklaborði og mús sem gestir geta þá tengt við sína tölvu.
Svefnherbergin eru þrjú
Hjónasvíta á fyrstu hæð með 180x200 hjónarúmi og innangengt inná sér baðherbergi. Tvö herbergi eru á 2. hæð, annað með 150x190 hjónarúmi og hitt með tveimur 90x190 einstaklingsrúmum. Öll svefnherbergi eru með loftkælingu og moskító net er í gluggum. Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig eru tvö barnaferðarúm í húsinu með dýnu, sæng og kodda fyrir ungabarnið.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi á fyrstu hæð er baðherbergi með salerni, handlaug og baðkari með sturtuaðstöðu. Einnig er þvottavél, ryksuga og önnur hreinlætisáhöld. Hárblásari og sléttujárn er í húsinu. Á efri hæð er baðherbergi með salerni, handlaug hillum og rúmgóðri sturtu. Baðhandklæði fyrir gesti fylgja í leigu en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.
Útiaðstaða og sundlaug
Góðar svalir eru á húsinu bæði á annarri og þriðju hæð með æðislegu útsýni, borði, stólum og sólbekkjum. Mjög stór einkagarður er við Sólvelli með einkasundlaug og útisturtu. Einnig eru útihúsgögn, stórt borð með stólum, sófasett, sólbekkir, útihitari, snúrur og Weber 3200 gasgrill. Út frá bakgarðinum er síðan hlið til að fara yfir í stóra sameiginlega sundlaugargarðinn, þar er stór sundlaug með barnalaug, sturtur og gott pláss fyrir sólbekki. Í húsinu eru bækur, spil og leikföng. Einnig eru strandstólar, sólhlíf og kælibox fyrir strandferðirnar sem gestir geta notað í fríinu.