VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
LÝSING
Sal Y Mar IV 4D
Komið er inní fallega stofu með borðstofu, þar er góður sófi, sjónvarp með chromecast, borðstofusett, vifta í loftinu, loftkæling og opið inní eldhús. Frá stofunni er verönd fyrir framan íbúðina með borði, stólum, tveimur sólstólum með hallandi baki og einnig er markísa. Frá verönd er farið að sundlauginni sem er beint fyrir framan íbúðina, þar er sundlaug með barnalaug og sturtur. Einnig fylgir aðgangur að einkabílastæði fyrir bílaleigubílinn í sameigninni. Stutt er að labba í alla helstu þjónustu og niður að ströndinni.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með 140x200 hjónarúmi, fataskáp, viftu í loftinu og einnig er flugnanet fyrir glugga.
Gestaherbergið er með tveimur 90x200 einstaklingsrúmum, hillu fyrir föt, viftu í loftinu og flugnanet fyrir glugga.
Sængur, koddar og rúmföt fylgja fyrir gesti.
Baðherbergi
Baðherbergi með sturtu, WC, vaski og hillum. Baðhandklæði fylgja leigu en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.