VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Efri sérhæð í Royal Park Center kjarnanum sem er í Villamartin/La Zenia hverfinu. Rúmgóðar svalir eru fyrir framan íbúðina og þaðan er gengið beint upp á um 100fm þaksvalir með vönduðu sófasetti, sólbekkjum, úti eldhúsi með gasgrilli, sólhlíf og ísskáp. Loftkæling/hitun er í allri íbúðinni, háhraða WiFi internet, snjallsjónvarp í stofu og hjónaherbergi og allur aðbúnaður í eldhúsi mjög góður. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, Laugardagsmarkaðinn, fjölmarga golfvelli og yfir í La Zenia verslunarmiðstöðina.
Eldhús, stofa og borðstofa
Eldhúsið er bjart og vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar. Frá eldhúsi er hægt að ganga út á svalirnar fyrir framan íbúðina og þar er einnig lokuð aðstaða fyrir þvottavélina og hreinlætisáhöld. Falleg björt stofa með borðstofu og opið er inní eldhúsið, í stofunni er tungu sófi, borðstofusett og sjónvarp. Frá stofunni er rennihurð út á svalirnar fyrir framan íbúðina, þar er flott aðstaða með borði, stólum og gott útsýni yfir garðinn og að sundlauginni.
Svefnherbergin eru þrjú
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, fataskáp, loftkælingu og innangengt er inná sér baðherbergi með sturtu. Gestaherbergi 1 er með hjónarúmi, fataskápum og loftkælingu. Gestaherbergi 2 er með tveimur einstaklingsrúmum, fataskápum og loftkælingu.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Hitt baðherbergið er á herbergisgangi, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum. Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og hárblásari er í íbúðinni. Gestir eru beðnir um að koma með sín eigin strandhandkæði til að taka með á ströndina.
Svalir, 100fm þaksvalir og sundlaugargarður
Fyrir framan íbúðina eru rúmgóðar svalir með borði og stólum og þaðan er síðan gengið uppá þaksvalir sem eru yfir allri íbúðinni. Á þaksvölum er frábær aðstaða fyrir gesti til að njóta blíðunnar á Spáni, grilla góðan mat og borða úti, þar er gott sófasett með borði, eldhús með ísskáp og vaski, gasgrill, sólbekkir, Pergola, útisturta og fallegt útsýni yfir garðinn og sundlaugina. Í sameign er sundlaugargarður með sundlaug, sólbekkjum, sturtum og opnu svæði. Þarna er einnig góð aðstaða til að sóla sig og slaka á við sundlaugarbakkann, garðurinn er einstaklega fallegur.