VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er í Oasis Beach VI kjarnanum sem er beint á móti La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, Laugardagsmarkaðinn, fjölmarga golfvelli og yfir í La Zenia verslunarmiðstöðina. Einnig fylgir aðgangur að bílastæði innan garðsins fyrir bílaleigubílinn. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar. Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er sófi sem einnig er svefnsófi og snjallsjónvarp svo geta gestir t.d. skráð sig inná sitt NETFLIX. Frá stofu er rennihurð út á veröndina sem er lokuð með gleri að hluta, þar er góð aðstaða með borði og stólum og þar fyrir framan opnast síðan út á enn stærra útisvæði sem snýr beint á móti sundlaugargarðinum. Þar eru stólar, sólbekkir og frábær aðstaða til að njóta blíðunnar.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum og fataskápum. Einnig er barnaferðarúm ásamt matarstól og léttri kerru fyrir ungt barn.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er með baðkari með sturtuaðstöðu, salerni, vaski og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari og sléttujárn í íbúðinni.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Suður verönd, sundlaugargarður og leiksvæði fyrir börnin
Frá stofu eru rennihurð út á flísalagða verönd og garðinn við húsið sem er á horni, þar eru sólbekkir, borð og stólar. Einnig er stórt aflokað svæði við aðalinngang íbúðar með borði, stólum, sófasetti og gasgrilli. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Í sameign er sundlaugargarður með sundlaug, sturtum, leiksvæði fyrir börnin, borðtennisborði og mjög flottu opnu svæði í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni, garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.