VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Íbúðin er á jarðhæð í Recidencial Muna SPA resort kjarnanum í Los Dolses hverfinu með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum, líkamræktarsal, sauna og innisundlaug. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, háhraða WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Eldhúsið er bjart og vel búið með helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru þrjú
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum. Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi með sturtu.
Tvö gestaherbergi, annað með hjónarúmi og fataskáp og hitt með tveimur einstaklingsrúmum og fataskápum.
Öll svefnherbergin eru með loftkælingu og rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergi er með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd og sundlaugargarður með tveimur sundlaugum
Frá stofu eru rennihurð sem opnar út á flísalagða verönd, þar eru sólbekkir, borð, stólar, Weber gasgrill og sófi. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Veröndin snýr í suðurátt og því ekki þörf á að fara út fyrir svalirnar til þess að njóta sólarinnar, hún er einnig beint á móti sundlauginni.
Í sameign er sundlaugargarður með tveimur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar og sturtur. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Einnig er frábær líkamsræktaraðstaða í sameigninni með sauna, innisundlaug og sturtum. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Los Dolses hverfið og aðrar eignir stutt frá
Los Dolses er vel staðsett á Orihuela Costa svæðinu og má segja að hverfið sé mitt á milli golfvallanna og baðstrandana á svæðinu. Einnig eru ekki nema ca. 5 mín niður að La Zenia verslunarmiðstöðinni. Við erum með tvær aðrar íbúðir í Muna kjarnanum sem er tilvalið fyrir fjölskyldur eða stærri hópa að bóka saman. Einnig erum við með íbúðir stutt frá í Villamartin Gardens, Mirador og Green Hills og er stutt að labba á milli þeirra. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.