VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á jarðhæð í Recidencial Muna Spa resort kjarnanum í Los Dolses hverfinu með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum, líkamræktarsal, sauna og innisundlaug. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, háhraða WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Stór flísalögð verönd er út frá stofunni og þaðan er hægt að ganga beint niður í sundlaugargarðinn. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi og snjallsjónvarp með fjölmörgum sjónvarpsstöðvum, einnig geta gestir t.d. skráð sig inná sitt NETFLIX. Mjög góð internet tenging er í íbúðinni með um 100mb hraða pr. sek. Frá stofu er rennihurð út á veröndina sem er mjög stór og með borði, stólum, sófum, sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, blandara, samlokugrilli, hrærivél, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og einnig er barnaferðarúm.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi með sturtu. Frá hjónaherbergi er rennihurð út í bakgarðinn og þar kemur morgunsólin upp.
Gestaherbergi er með tveimur einstaklingsrúmum og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er á gangi þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd og sundlaugargarður með tveimur sundlaugum
Frá stofu eru rennihurðar sem opna út á flísalagða verönd, þar eru sólbekkir, borð, stólar, Weber gasgrill og sófasett. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Veröndin snýr í suðurátt og því ekki þörf á að fara út fyrir svalirnar til þess að njóta sólarinnar.
Í sameign er sundlaugargarður með tveimur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar og sturtur. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Einnig er frábær líkamsræktaraðstaða í sameigninni með sauna, innisundlaug og sturtum. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Los Dolses hverfið og aðrar eignir stutt frá
Los Dolses er vel staðsett á Orihuela Costa svæðinu og má segja að hverfið sé mitt á milli golfvallanna og baðstrandana á svæðinu. Einnig eru ekki nema ca. 5 mín niður að La Zenia verslunarmiðstöðinni.
Við erum með tvær aðrar íbúðir í Muna kjarnanum sem er tilvalið fyrir fjölskyldur eða stærri hópa að bóka saman. Einnig erum við með íbúðir stutt frá í Villamartin Gardens, Mirador og Green Hills og er stutt að labba á milli þeirra. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.