VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
5 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm1
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Komið er inní alrými með stofu, borðstofu og opið inní eldhúsið, í stofunni er 2ja sæta sófi, hægindastóll, sjónvarp, loftkæling/hitun, arinn, vifta og borðstofusett. Bjart og gott eldhús með öllum helstu áhöldum og innaf eldhúsi er geymsla. Frá stofunni er gengið út á litla verönd með glerlokun, þar er lítið borð og tveir stólar, þaðan er gengið upp stiga til að komast uppá þaksvalirnar. Þar má finna frábært útisvæði með sólbekkjum, kolagrilli, borði, stólum og markísu. Einnig er rúmgott herbergi þar uppi með svefnsófa, sjónvarpi og sér baðherbergi. Húsið er með arinn og ofnakerfi (Central Heating) sem gott er að nota til að hita húsið á vetrartíma, þá helst jafn og góður hiti á húsinu.
Svefnherbergin eru þrjú
Hjónaherbergi með hjónarúmi, góðum skápum, lofkælingu, ofn og viftu í loftinu.
Herbergi 2 er með einstaklingsrúmi, fataskáp, ofn og viftu í loftinu.
Herbergi 3 er á efri hæð, gengið er uppá þalsvalirnar og þar er rúmgott herbergi með svefnsófa, sjónvarpi, og loftkælingu/hitun, einnig er þar sér baðherbergi með sturtu.
Baðherbergin eru tvö
Á aðalhæð húsins er baðherbergið með salerni, handlaug, sturtu og góðri innréttingu með skúffum.
Á eftir hæð er gott baðherbergi með salerni, handlaug, sturtu og þvottavél.
Baðhandklæði eru til staðar en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.
Verönd, þaksvalir og sameiginlegur sundlaugargarður
Sameiginlegur sundlaugargarður fylgir íbúðinni, þar er stór sundlaug með barnalaug og sturtur.
Við húsið er flísalögð verönd með borði, stólum og pergólu með hliðum, einnig er lítil verönd fyrir framan stofuna með borði, stólum og glerlokun og þaðan er síðan gengið uppá þaksvalirnar sem eru yfir íbúðinni. Á þaksvölum er gott pláss með sólbekkjum, borði, stólum, hlöðnu kolagrilli og markísu.