VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á efstu hæð í Mirador de Villamartin kjarnanum með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir bílastæði innan garðsins með fjarstýrðu hliði sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn. Tvenn reiðhjól eru einnig til staðar fyrir gesti.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, JBL bluetooth hátalari og snjallsjónvarp svo gestir geta td. skráð sig inná sitt NETFLIX og fjölmargar sjónvarpstöðvar. Frá stofu er rennihurð út á 16fm yfirbyggðar svalir með glerlokun þar er gott matarborð, stólar, útsýni yfir sundlaugargarðinn og flott aðstaða til að njóta blíðunnar. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og einnig er barnaferðarúm.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu. Gestaherbergið er á gangi innaf stofunni, einnig með hjónarúmi og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er á ganginum á móti hinu svefnherberginu, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði eru fyrir gesti og einnig er boðið uppá strandhandklæði til að taka með niður að sundlauginni eða á ströndina. Hárblásari er í íbúðinni.
40fm þaksvalir og sundlaugargarður með tveimur sundlaugum
Frá stofu og eldhúsi eru rennihurðar sem opna út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir með glerlokun sem nýtist td. Vel á vorin og haustin, á svölum eru gott borð og sex stólar. Þarna er frábær aðstaða með fallegu útsýni fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar.
Íbúðinni er einnig með 40fm einka þaksvalir með frábæru útsýni yfir svæðið, þar eru góð útihúsgögn og sólbekkir. Einnig fylgja tveir léttir sólstólar með íbúðinni sem nota má til að fara með niður að sundlauginni eða á ströndina.
Í sameign á milli húsanna er sundlaugargarður með tveimur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum með aðrar eignir á jarðhæð í Mirador og einnig með íbúðir í Villamartin Gardens og Green Hills kjarnanum sem eru hinum megin við götuna beint á móti Mirador. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.