VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Íbúðin er á 2. hæð í Mirador de Villamartin IV kjarnanum með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með sundlaug. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, góð rúm og allt til alls. Fínar svalir eru út frá stofu sem snúa í suður og einnig fylgir íbúðinni þaksvalir með gríðarlega fallegu útsýni yfir svæðið. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir bílastæði í bílatæðahúsi með fjarstýrðu hliði sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi og snjallsjónvarp svo gestir geta td. skráð sig inná sitt NETFLIX. Frá stofunni er rennihurð út á frábærar flísalagðar svalir með sófasetti og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru þrjú
Íbúðin er með þremur rúmgóðum svefnherbergjum með fataskápum.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergin tvö eru annarsvegar með hjónarúmi og fataskáp og hinsvegar með tveimur einstaklingsrúmum, fataskáp og útgegni á svalirnar. Öll svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Hitt baðherbergið er á gangi á móti eldhúsinu, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Svalir og sundlaugargarður
Hægt að ganga út á flísalagðar svalir frá stofu og herbergi, svalirnar snúa í suður og þar er sófasett. Einnig eru 4 strandsólbekkir sem hægt er að leggja saman og taka með niður að sundlauginni.
Íbúðinni fylgir einnig aðgangur að góðum prívat þaksvölum og þar eru 2 sólbekkir. Í sameign er sundlaugargarður með sundlaug í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með aðrar íbúðir á svæðinu í Mirador de Villamartin V, Green Hills og Villamartin Gardens sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.