VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Casa Dolce Vita íbúðin er á jarðhæð í Mirador de Villamartin FASE V kjarnanum með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, háhraða WiFi, loftkæling, Weber gasgrill, góð rúm og allt til alls. Stór og flottur garður með flísalagðri verönd er út frá stofunni og þaðan er hægt að ganga beint út að sundlauginni sem er beint á móti. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir bílastæði innan garðsins með fjarstýrðu hliði sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi og snjallsjónvarp svo gestir geta skráð sig inná sitt NETFLIX eða notað IPTV box með ótal sjónvarpsstöðum þar sem unnt er að horfa á beinar útsendingar á sportrásum og fjölda bíórása. Gestir geta tengst mjög góðum glænýum ferðahátalara, Megaboom, með símanum og þannig hlustað á spotify eða aðrar veitur. Frá stofu er rennihurð út í garðinn með borði, stólum, sólbekkjum, Weber gasgrilli og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, svefnsófa í stofu fyrir 2 börn og einnig er barnaferðarúm.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergi er á gangi innaf stofunni, einnig með hjónarúmi og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er á gangi þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd, garður og sundlaugargarður með tveimur sundlaugum
Frá stofu og eldhúsi eru rennihurðar sem opna út á flísalagða verönd og garð, þar eru sólbekkir, borð, stólar og Weber gasgrill. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Veröndin er einnig með glerlokun að hluta, sundlaugin er síðan beint á móti veröndinni. Veröndin og garðurinn snúa í suðurátt og því ekki þörf á að fara út fyrir garðinn til þess að njóta sólarinnar. Aðeins eru nokkrir metrar frá lóðarmörkum að sundlaug og því afar auðvelt að fylgjast með börnunum svamla í lauginni eða til að fá sér kælingu í lauginni.
Í sameign á milli húsanna er sundlaugargarður með tveimur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar og sturtur. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum með fleiri íbúðir í Mirador kjarnanum og einnig með íbúðir í Villamartin Gardens og Green Hills sem eru við sömu götu og Mirador og mjög stutt að labba á milli þeirra. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.