VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
10 manns -
Svefnherbergi5
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm3
-
Kojur1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Rúmgott fjarkahús í Mirador de Villamartin IV með aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, markað, Villamartin Plaza, flotta golfvelli og La Zenia verslunarmiðstöðina. Einnig fylgir bílastæði við húsið fyrir bílaleigubílinn. Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er tungusófi, hægindastóll og snjallsjónvarp svo gestir geta td. skráð sig inná sitt NETFLIX og myndlykill frá Vodafone. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, Lór Barista kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar. Í kjallara húsins eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og rúmgott alrými með sófa, hægindastól, Smart TV með heimabíói og píluspjald. Einnig er þvottahús með þvottavél í kjallara.
Þetta er frábært hús fyrir stórar fjölskyldur eða vinahópa með svefnplássi fyrir allt að 10 gesti og að auki er barnaferðarúm.
Svefnherbergin eru fimm
Á fyrstu hæð er rúmgott svefnherbergi með hjónarúmi, fataskáp, standviftu og loftkælingu. Tvö svefnherbergi eru á annari hæð húsins annað með hjónarúmi, fataskáp, standviftu og loftkælingu og hitt er með kojum, fataskáp, standviftu og loftkælingu. Frá báðum svefnherbergjum á efri hæð er hægt að ganga út á svalirnar sem eru með útisófasetti, sólhlíf, Weber gasgrilli og sólbekkjum.
Gengið er frá stofunni niður í kjallara með litlum gluggum þar sem eru tvö svefnherbergi, eitt með hjónarúmi og hitt með tveimur einstaklingsrúmum, einnig er eitt 90cm. aukarúm í geymslunni. Sængur eru til staðar sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru þrjú
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu með skúffum er á aðalhæðinni. Annað baðherbergi er á efri hæð með salerni, vaski, sturtu og innrétting með skúffum.
Einnig er baðherbergi í kjallara með salerni, vaski, sturtu og innréttingu með skúffum. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Svalir og sundlaugargarður
Við húsið er flísalögð verönd út frá stofu með borði og stólum. Frá herbergjum á annari hæð húsins er útgengt út á rúmgóðar svalir með útihúsgögnum, sólhlíf, gasgrilli og sólbekkjum. Í sameign er sundlaugargarður í lokuðum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með aðrar íbúðir á svæðinu í Mirador de Villamartin, Green Hills og Villamartin Gardens sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.