VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er á jarðhæð í Mirador de Villamartin FASE V kjarnanum með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum. Íbúðin er mjög vel skipulögð og vel búin, WiFi, loftkæling, Weber gasgrill, góð rúm og allt til alls. Stór og flottur garður með flísalagðri verönd sem að hluta til er lokuð með gleri er út frá stofunni og þaðan er hægt að ganga beint út að sundlauginni. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, flotta golfvelli, La Zenia verslunarmiðstöðina og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig fylgir bílastæði innan garðsins með fjarstýrðu hliði sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi og 65" snjallsjónvarp með áskriftarpakka IPTV m.a. íslenskar stöðvar, einnig geta gestir skráð sig inná sitt NETFLIX eða aðrar veitur. Frá stofu er rennihurð út í garðinn með borði, stólum, sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, Nespresso kaffivél, brauðrist, töfraproti, samlokugrilli, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum með fataskápum og loftkælingu, einnig er barnaferðarúm.
Hjónaherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu. Gestaherbergi eru á gangi innaf stofunni, einnig með hjónarúmi. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum með vönduðum dýnum. Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er á gangi þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti, einnig er hárblásari og sléttujárn.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd, garður og sundlaugargarður með tveimur sundlaugum
Frá stofu og eldhúsi eru rennihurðar sem opna út á flísalagða verönd sem er lokuð að hluta með gleri og út í garðinn, þar eru fjórir sólbekkir með dýnum, borð, stólar og Weber gasgrill. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar.
Í sameign á milli húsanna er sundlaugargarður með tveimur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að, þar eru sundlaugar og sturtur. Þarna er góð aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum með fleiri íbúðir í Mirador kjarnanum og einnig með íbúðir í Villamartin Gardens og Green Hills sem eru við sömu götu og Mirador og mjög stutt að labba á milli þeirra. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.