VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Fallegt einbýlishús við Santa Rosalia Lake and life Resort baðlónið. Húsið er mjög vel búið öllum helstu nútímaþægindum og stutt er í allskonar afþreyingu en Santa Rosalia Resort er lokað svæði með öryggisgæslu. Góður garður er við húsið með flísalagðri verönd, gasgrilli og útihúsgögnum. Að auki eru tvennar svalir á húsinu með sólbekkjum, sófasetti og heitum potti, einnig er stutt að labba að fallega baðlóninu frá húsinu. Í stofunni er sófi og snjallsjónvarp, WiFi, loftkæling og borðstofuborð með stólum. Eldhúsið er bjart og vel búið með helstu áhöldum til matargerðar.
Rúmgóður kjallari er undir öllu húsinu, þar er eitt svefnherbergi með tveimur einstaklingsrúmum, baðherbergi með sturtu og stórt opið rými með loftkælingu, góðum sófa, sjónvarpi, borði, stólum og bar.
Svefnherbergin eru þrjú
Á aðalhæðinni er svefnherbergi með 160 cm hjónarúmi, góðum fataskápum og loftkælingu. Á efri hæð er svefnherbergi með 160 cm hjónarúmi, góðum fataskápum, sér baðherbergi með sturtu innaf og útgengi út á svalir með húsgögnum. Í kjallara er einnig svefnherbergi með tveimur 80 cm einstaklingsrúmum.
Baðherbergin eru þrjú
Þrjú baðherbergi eru í húsinu með salerni, vaski, sturtu og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að fara með að baðlóninu.
Santa Rosalia svæðið og golfið allt í kring
Santa Rosalia Lake and life Resort baðlónið er ca. 4 km. utan við strandbæinn Los Alcázares sem liggur að Mar Menor, einu stærsta innhafi Evrópu. Innan svæðissins er fjöldi tækifæra til útivistar og afþreyingar, mini golf, leikvellir, blak, jógasvæði, tennis, strandbar, göngu og hjólastígar ásamt líkamsræktarstöð. Meðfram strandlengjunni við Los Alcazares liggur 7 km göngugata (promenade) en þar er mikið líf allt árið um kring. Í Los Alcazares búa um 17 þúsund manns en á sumrin eru um 100 þúsund manns í bænum þegar ferðamannastraumurinn nær hámarki. Svæðið býður upp á úrval frábærra veitingastaða og mikla spænska menningu þar sem innfæddir búa þar allt árið um kring. Þrjár stórar verslunarmiðstöðvar eru í 10-20 mínútna akstursfjarlægð frá Santa Rosalia svæðinu. Um 25 og 35 mínútur tekur að keyra til sögufrægu borganna Cartagena og Murcia og um 50 mínútur til Alicante flugvallarins.
Paradís Golfara
Húsið er tilvalið til leigu fyrir golfara sem vilja blanda saman góðri slökun og golfi þar sem stutt er á marga góða golfvelli og má þar nefna mjög nálæga velli eins og Roda golf og La Serena sem hafa jafnframt mjög góð æfingasvæði. Mar Menor golfvöllurinn er við hlið svæðisins í fárra mínútna fjarlægð og stutt er á Hacienda Riquelme, El Valle, Lo Romero, Saurines, Villamartin, Las Colinas og fleiri. Í Murcia sýslu þar sem bærinn Los Alcazares er staðsettur, eru 22 golfvellir.
Hafa ber í huga við leigu á þessari eign að Santa Rosalia svæðið er enn að hluta til í byggingu og töluverðar framkvæmdir í gangi á svæðinu með tilheyrandi raski.