VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
LÝSING
Comunidad Hinojo I, íbúð 48
Glæsileg vönduð íbúð í litlu fjölbýli á besta stað inni á Las Colinas golfvallarsvæðinu. Útsýnið úr íbúðinni er stórkostlegt og þaðan sést út á Miðjarðarhaf og yfir glæsilegan Las Colinas golfvöllinn, sem kosinn hefur verið besti golfvöllur Spánar undanfarin ár.
Íbúðin, sem er vel útbúin öllum helstu þægindum er með þremur rúmgóðum hjónasvítum sem allar eru með vönduðum heilsurúmum, góðum fataskápum og loftkælingu. Tvær snyrtingar eru í íbúðinni, önnur innaf einni hjónasvítunni. Eldhúsið er vel búið helstu áhöldum til matargerðar og fallegt borðstofuborð með sex stólum er við eldhúseyjuna. Opin og björt stofa með góðum sófa, loftkælingu og útgengi á glæsilegar svalir með útihúsgögnum, sólbekkjum og markísu, einnig er hægt að ganga út á svalirnar frá einni hjónasvítunni.
Í sameign húsins er bílakjallari og glæsileg sundlaug sem hvort tveggja er til afnota fyrir gesti hússins.
Á Las Colinas svæðinu er frábæra þjónustu að finna, t.d. 3 góða veitingastaði og litla matvöruverslun. Stór líkams- og heilsurækt er á svæðinu, tennis-, paddel- og leikvellir. Einnig eru margar fallegar gönguleiðir í villtri náttúru svæðisins.
Frá Las Colinas tekur um 10-15 mínútur að keyra niður á fjölmargar dásamlegar strendur og sækja fjölbreytta þjónustu og veitingastaði.