VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
4 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Efri sérhæð í Residential Grecia kjarnanum við La Finca golfvöllinn. Rúmgóðar svalir eru út frá stofu og þaðan er gengið upp á um þaksvalir með sófasetti, sólbekkjum, úti eldhúsi með gasgrilli og pergólu. Loftkæling/hitun er í allri íbúðinni, WiFi internet, snjallsjónvarp í stofu og allur aðbúnaður í eldhúsi mjög góður. Einkabílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni.
Eldhús, stofa og borðstofa
Eldhúsið er bjart og vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar. Falleg björt stofa með borðstofu og opið er inní eldhúsið, í stofunni er sófi, borðstofusett og sjónvarp. Frá stofunni er rennihurð út á svalirnar með sófasetti og gott útsýni yfir garðinn og að sundlauginni.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, fataskáp, loftkælingu og innangengt er inná sér baðherbergi með sturtu. Gestaherbergi einnig með með hjónarúmi, fataskápum og loftkælingu.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Hitt baðherbergið er á herbergisgangi, þar er salerni, vaskur, góð sturta og innrétting með skúffum. Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og hárblásari er í íbúðinni. Gestir eru beðnir um að koma með sín eigin strandhandkæði til að taka með á ströndina.
Svalir, þaksvalir og sundlaugargarður
Fyrir stofunni eru rúmgóðar svalir með sófasetti og þaðan er síðan gengið uppá þaksvalir sem eru yfir allri íbúðinni. Á þaksvölum er frábær aðstaða fyrir gesti til að njóta blíðunnar á Spáni, grilla góðan mat og borða úti, þar er gott sófasett með borði, eldhús með ísskáp og vaski, gasgrill, sólbekkir, Pergola, útisturta og fallegt útsýni yfir garðinn og sundlaugina. Í sameign er sundlaugargarður með sundlaug, sólbekkjum, sturtum og opnu svæði. Þarna er einnig góð aðstaða til að sóla sig og slaka á við sundlaugarbakkann, garðurinn er einstaklega fallegur.
