VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
LÝSING
Glæsileg 2 svefnherbergja íbúð á 1.hæð í hinum glæsilega Flamenca Village kjarna í Playa Flamenca hverfinu. Íbúðin er öll hin glæsilegasta með öllum þeim búnaði sem þarf til að gera dvölina sem ánægjulegasta, í göngufjarlægð frá ströndinni sem og allri helstu þjónustu. Í kjarnanum eru þrjár sundlaugar, þar af ein upphituð og ein með sundlaugarbar. Það eru tvær barnalaugar, gosbrunna leiksvæði og barna leikvöllur. Þá eru á sundlaugarsvæðunum fjórir pottar (jacuzzi). Sólbekkir og sólhlífar eru við sundlaugarnar. Vel búin líkamsrækt er staðsett í skemmtilegu umhverfi. La Zenia Boulevard mollið er í göngufjarlægð og fullt af flottum golfvöllum stutt frá. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílastæðahúsi.
Falleg stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið sem er vel búið með helstu áhöldum til matargerðar. Frá stofu og hjónaherbergi er rennihurð út á mjög stórar svalir.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt er inná baðherbergi með sturtu. Gestaherbergi einnig með hjónarúmi og fataskápum.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Hitt baðherbergi er með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Baðhandklæði fylgja fyrir gesti og einnig er hárblásari.Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.