VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
8 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
-
Svefnsófi1
LÝSING
**MYNDIR af húsinu koma í lok júlí **
Glæsilegt og vel útbúið einbýlishús með stórum garði og einkasundlaug. Til staðar er stór verönd (til suðurs), rúmgóðar svalir og roof top terrace með frábæru útsýni og sjávarsýn til tveggja átta. Húsið er mjög vel staðsett en í nágrenninu er fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða t.d. í Lomas de Cabo Roig Center og La Fuente. Stutt í La Zenia Boulevard vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina. Innan 30 km radíusar eru alls um 17 golfvellir t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Það er því tilvalið fyrir golfara sem vilja reyna fyrir sér á fyrsta flokks golfvöllum í frábæru veðri og dekra vel við sig á milli hringja.
Húsið er vel búið öllum nútímaþægindum í aflokuðum stórum garði með einkabílastæði inni á lóð. Bakgarður hússins snýr í hásuður með stórri flísalagðri verönd þar sem sólar nýtur allan daginn. Þar er útiborð og stólar, sólbekkir, útisófasett, Weber gasgrill og markísa. Í garðinum er stórt svæði meðfram húsinu með flísalagðri gangstétt, að hluta til gerfigrasi og viðarpalli þar sem mögulegt er að sitja og njóta morgunsólarinnar. Í garðinum eru til staðar appelsínu- og sítrónutré þar sem hægt er að tína sér ávexti til njóta eða setja út í drykki.
Stór einkasundlaug er við húsið þar sem sólar nýtur við allan daginn. Sundlaugina er mögulegt að hita upp og í einu horni hennar er að finna nuddpott þar sem yndislegt er að slaka á eftir langan dag. Húsið er stílhreint og bjart og eru nánast öll húsgögn alveg endurnýjuð.
Slakaðu á í algjöru næði og fallegu umhverfi (nánari lýsing á húsinu sjálfu)
Í stofunni er góður svefnsófi, snjallsjónvarp, WiFi, loftkæling og borðstofuborð með stólum og einnig eru barstólar við eldhúseyjuna. Eldhúsið er vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar
Öll svefnherbergin eru með vönduðum rúmum og loftkælingu/hitun. Á efri hæð eru tvö rúmgóð herbergi. Annað með tveimur 90 cm nýjum og þægilegum rúmum (sem má færa saman) og rúmgóðum fataskáp. Hitt herbergið er mjög rúmgóð hjónasvíta með hjónarúmi, stórum fataskáp og útgengi út rúmgóðar svalir sem snúa í hásuður. Á jarðhæð er gestasvíta með sér baðherbergi, rúmgóðum fataskáp og tvíbreiðu rúmi.
Þrjú baðherbergi eru í húsinu. Eitt þeirra er gestasnyrting, annað með salerni, vaski og sturtu og það þriðja með salerni, vaski, sturtu og baðkari. Í húsinu eru til staðar handklæði en gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og á ströndina.
Stutt í golf, fjölbreyttar gönguleiðir og strandlífið
Mikið úrval af skemmtilegum golfvöllum er í næsta nágrenni við húsið.
Mögulegt er að fá lánaða endurgjaldslaust golfsett sem fylgja húsinu.
Ströndin er í 2km fjarlægð þar sem eru fjölbreyttir og skemmtilegir veitingastaðir, falleg sandströnd, skemmtilegt strandlíf og göngustígar meðfram allri ströndinni.