VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
5 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Íbúðin er staðsett í Quesada í Rojales. Rojales er ekki langt frá Torrevieja, en kjarninn sem íbúðin er í er rétt ofan við saltvötnin. Ekki er nema 35 mínútna akstur frá flugvellinum í Alicante. Húsin hafa sameiginlegan aðgang að fallegum sundlaugargarði sem húsin eru byggð í kring um. Mjög vel búin með öllu því helsta sem maður þarf til að hafa það huggulegt. Alrýmið er bjart og fallegt með góðu og vel útbúnu eldhúsi. Í eldhúsinu er spanhelluborð, bakaraofn, uppþvottavél og góður tvískiptur ísskápur með frystihólfi, Nespresso kaffivél, hraðsuðuketill, brauðrist og öll helstu áhöld til eldamennsku. Stofan er með góðum sófa, auk þess eru tveir stakir stólar og snjallsjónvarp er í stofunni með aðgangi að fjölda sjónvarpsstöðva í gegnum IPTV m.a. íslenskar stöðvar, loftkæling og viftu.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tvö svefnherbergi, bæði með hjónarúmi, loftkælingu, viftu og góðum skápum. Annað svefnherbergið er með en-suite baðherbergi. Einnig er sófi í stofunni sem rúmar vel einn fullorðin. Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er samanbrjótanlegt barnaferðarúm.
Baðherbergin eru tvö
Tvö baðherbergi eru í íbúðinni, bæði með góðri sturtu, góðri innréttingu með skápaaðstöðu og skúffum. Ofanáliggjandi baðvaskar á fallegri steinborðplötu. Hárblásari er á öðru baðherberginu. Baðhandklæði fylgja íbúðinni en gestir þurfa sjálfir að koma með eigin handklæði til sólbaða, fyrir sundlaugina og strandferðir.
Svalir og þaksvalir
Íbúðin er á efri hæð með sér inngangi utan frá. Íbúðinni tilheyra 75fm þaksvalir með hornsófa, matarborði, Weeber kúlugasgrill og fjórum sólbekkjum, þar sem hægt er að njóta góða veðursins og hafa það huggulegt. Á þaksvölunum er einnig útisturta, frábært útsýni er af þaksvölunum. Frá stofu er gengið út á góðar svalir sem snúa beint á móti sundlauginni, þar er lítið sófasett.
Nágrennið og þjónusta allt í kring
Íbúðin er í mjög fallegu hverfi, sem að hluta er enn í uppbyggingu. Fjöldi góðra veitingastaða eru í um 10 – 25 mínútna gönguradíus.
Í nágrenninu er flottur 18 holu golfvöllur, einn vinsælasti mini golfvöllurinn á Torrevieja svæðinu og vatnsrennibrautargarður fyrir krakkana.
Laugavegurinn svokallaði á þessu svæði er í 25 mínútna göngufjarlægð í gegn um skemmtilegt íbúðahverfi. Á Laugaveginum er mikið af skemmtilegum veitingastöðum, verslanir og alls kyns þjónusta, eins apótek, hárgreiðslustofur, hjólaleiga og fleira. Heilsugæsla er rétt neðan við Laugaveginn, nær íbúðinni.
Stutt er að fara í góðar verslunarmiðstöðvar. Habaneras er nær en þangað er hægt að hjóla á hjólastígum. Þangað er um 10 mínútna akstur (mjög bein og einföld leið). Svo er það Zenia verslunarmiðstöðin sem er lengra í burtu. Zenia er bæði nýrri og stærri en þangað er um 20 mínútna akstur.
Um 10 mínútna akstur er á ströndina í Guardamar sem er mjög falleg strandlengja aðeins NA af Rojales. Stutt er á sítrónumarkaðinn sem opinn er alla sunnudaga, allt árið um kring. Á sítrónumarkaðnum svokallaða er hægt að finna allt milli himins og jarðar en þar er mjög flottur matarmarkaður. Hvað er huggulegra en að fara heim með heilan poka af glænýjum lífrænum appelsínum í morgunsafann, á verði sem við trúum varla að sé rétt.