VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm2
LÝSING
Glæsileg og mjög vönduð penthouse íbúð á frábærum stað í Playa Flamenca hverfinu með útgengi út á rúmgóðar austur svalir með borði og stólum. Frá svölum er gengið upp á fallega þakverönd með sófasetti, pergólu, sólbekkjum, sturtu og glæsilegri einkasundlaug. Útsýnið er mjög gott yfir hverfið og til sjávar. Í stofunni er sófi og hægindastóll, snjallsjónvarp, WiFi, loftkæling og fallegt borðstofuborð með fjórum stólum. Eldhúsið er bjart og vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar. Við íbúðina er góður sameiginlegur sundlaugagarður með sundlaug, barnalaug og góðri aðstöðu til sólbaða. Einnig er líkamsrækt í sameign sem gestir hafa aðgang að.
Svefnherbergin eru þrjú
Hjónherbergið er með vönduðu 180 x 200 cm hjónarúmi, góðum fataskápum og loftkælingu, inn af hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtu. Einnig er útgengt út á svalir frá hjónaherberginu.
Tvö gestaherbergi annað með vönduðu 160 x 200 cm hjónarúmi og hitt með tveimur 90 x 200 cm einstaklingsrúmum, góðum fataskápum og loftkælingu, frá þeim er einnig útgengt út á svalirnar.
Baðherbergin eru tvö
Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.
Íbúðin hefur ekki aðbúnað fyrir börn og er því eingöngu leigð barnlausum aðilum að ósk eiganda. Íbúðin er lúxuseign fyrir vandláta.