VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi3
-
Hjónarúm3
LÝSING
Glæsilegt og vel hannað 156 fm. einbýlishús á einni hæð á góðum stað á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu.
Stór einkagarður með einkasundlaug, útisturtu og glæsilegum púttvelli. Útieldhús með góðri grill aðstöðu, yfirbyggt bílskýli fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð.
Björt og góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góð tenging við garðinn, stór verönd með frábærri aðstöðu og er hægt að ganga út í garðinn frá öllum rýmum. Þvottahús er inn af eldhúsi. Vönduð húsgögn og húsbúnaður, ásamt fallegum útihúsgögnum. Gólfhiti er í öllu húsinu. Þetta er sannarlega lúxuseign fyrir kröfuharða.
Svefnherbergin eru þrjú - öll með einka baðherbergi
Svefnherbergin eru með vönduðum hjónarúmum, fataskápum og loftkælingu/hitun. Svefnherbergin eru einnig öll með einkabaðherbergi og hægt að ganga út í garðinn umhverfis húsið frá þeim.
Las Colinas svæðið
Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Fleiri góðir golfvellir eru í næsta nágrenni við Las Colinas golfvöllinn, t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella, Lo Romero og fleiri.
Brottfararþrif
Brottfararþrif kosta €175 og eru gestir beðnir að skilja eftir penging fyrir þeim.