VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hjónarúm3
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Endaraðhús sem er afar vel staðsett í Cabo Roig. Þaðan er stutt upp á göngugötuna í hverfinu. Þar má finna mikið mannlíf alla daga. Flottir veitingastaðir og barir. Ströndin er í göngufæri. Europa og Consum matvöruverslanirnar eru einnig í göngufæri og svo má finna líflegan markað á fimmtudögum í hverfinu. Alþjóðlega heilsugæslu má finna í næstu götu.
Húsið var allt tekið í gegn sumarið 2025. Málað, nýr svefnsófi og ný heimilistæki í eldhúsi.
Falleg stofa með rúmgóðum svefnsófa 140x200 fyrir tvo með lúxusdýnu. Stækkanlegt borðstofuborð fyrir 6-8 manns, snjallsjónvarp og loftkæling. WiFi internet í gegnum ljósleiðara og yfir 120 sjónvarpsstöðvar í boði.
Út frá stofunni er gengið út í mjög stóran garð sem allur er flísalagður og snýr til suðurs og austurs og er með óhindraða
sjávarsýn. Útisófi og útiborð með 6 stólum og 8 nýir sólbekkir.
Vel búið eldhús er á jarðhæð með öllum helstu áhöldum til matargerðar. Uppþvottavél, bakaraofn með blæstri, helluborð, ísskápur með frystihólfi, Dolce Gusto kaffivél, AirFryer, brauðrist, samlokugrill, vöfflujárn, hraðsuðuketill og blandari. Út frá
eldhúsi er flísalögð verönd með gasgrilli. Einnig er þvottavél og aðstaða til að hengja upp þvott. Þaðan er einnig hægt að ganga út í garðinn við húsið.
Svefnherbergin eru þrjú.
Svefnherbergi 1: Er á annari hæð með 160x200 hjónarúmi, fataskáp, kommóðu, loftkælingu, viftu og litlum svölum.
Svefnherbergi 2: Er á annari hæð með 150x200 hjónarúmi, loftkælingu, viftu og fataskáp.
Svefnherbergi 3: Risherbergi er á þriðju hæð með 160x200 hjónarúmi og loftkælingu (herbergið er gluggalaust)
Athugið - Verið er að taka risherbergi í gegn og setja upp loftkælingu. Myndir koma um leið og framkvæmdum lýkur.
Sængur eru í húsinu sem gestir geta notað á haustin og á vorin eða eftir þörfum. Barnaferðarúm og matarstóll er einnig í húsinu.
Baðherbergin eru tvö.
Á fyrstu hæð er lítið baðherbergi með salerni og vaski.
Á annarri hæð er baðherbergi með salerni, vaski og stórri “walk in “ sturtu. Hárblásari er í húsinu.
Baðhandklæði fylgja en gestir eru beðnir um að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd.
Svalir, stór flísalagður garður og sameiginleg sundlaug.
Mjög stór, flísalagður einkagarður sem snýr í suður og austur er við húsið. Þar er borð, 6 stólar, 8 sólbekkir og frábær aðstaða til að njóta blíðunnar á Spáni, grilla góðan mat og sóla sig. Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni yfir garðinn og til sjávar. Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni yfir garðinn og til sjávar.
Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug, nuddpottur og sturtur.
