VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm4
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
-
Barnaferðarúm1
LÝSING
Missýkot er tveggja svefnherbergja efri sérhæð í íbúðarkjarnanum Vista Azul XXV í hverfinu Lomas de Cabo Roig. Íbúðin er vel búin búnaði, gólfhiti er í húsinu og loftkæling/hitun í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð verönd er við uppgöngu í íbúðina á jarðhæð, íbúðin sjálf er öll á annari hæð. Svalir eru út frá stofu og eldhúsi og þaðan er síðan gengið uppá stórar einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu, þar eru sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, ísskápur, lítill eldúsbekkur með vask, sturta, markísa og æðislegt útsýni. Fallegur sundlaugargarður er inná milli húsana og hverfið er mjög rólegt og gott. Matvöruverslunin Iceland og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mollið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.
Eldhús, stofa og borðstofa
Fyrir framan húsið er stór flísalögð verönd og þaðan er gengið uppí íbúðina, komið erinní opið rými með fallegri stofu, borðstofu og eldhúsi. Í stofunni er sófi og tveir stakir stólar, nýtt snjallsjónvarp sem er nettengt. Loftkæling er í stofunni og einnig er WiFi internet tenging í íbúðinni. Eldhúsið er opið yfir í stofu það er bjart og vel búið með ísskáp og frystihólfi. Í eldhúsinu er uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðuketill, samlokugrill og öll helstu áhöld til matargerðar. Frá eldhúsi og stofu er gengið út á góðar svalir þar eru borð, stólar og markísa og þaðan er gengið uppá þaksvalirnar sem eru yfir íbúðinni með útsýni yfir æðislegan sameiginlegan sundlaugargarð fyrir íbúðarkjarnann. Á þaksvölum eru sólbekkir, stórt borð, stólar og risa stór markísa sem draga má yfir til að fá hlé frá sólinni.
Svefnherbergin eru tvö
Húsið er með tveimur svefnherbergjum og er með gistirými fyrir 4-6. Hjónaherbergið er með tveimur samliggjandi 90 cm rúmum, góðum fataskáp, öryggishólfi inní fataskápnum og innangengt inná baðherbergi með sturtu. Hitt svefnherbergið er með tveimur 80 cm breiðum rúmum og einnig eru þar tvö auka 80cm rúm undir hinum rúmunum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu/hitun. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergin eru tvö
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er innaf hjónaherbergi. Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er á ganginum við aukaherbergið. Baðhandklæði og rúmföt fylgja leigu, eitt stórt og eitt lítið fyrir hvern gest og einnig er hárblásari í skúffu á hjónaherbergis baðherbergi. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.
Verönd, þaksvalir og sundlaugargarður
Rúmgóðar verandir eru fyrir framan húsið og einnig eru góðar svalir út frá stofunni, þaðan er síðan gengið uppá á einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu og af þeim sést vel yfir sundlaugargarðinn, uppi á þaksvölum eru sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, markísa og fallegt útsýni yfir hverfið og út á sjó.
Stór sameiginlegur sundlaugargarður er inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru sundlaugar með barnalaug ein upphituð sundlaug, sturtur og frábær aðstaða til að sóla sig og njóta. Garðurinn er einstaklega fallegur mjög fjölskylduvænn og húsið er vel staðsett í garðinum.