VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Glæsileg íbúð á jarðhæð með einkasundlaug í garðinum samhliða þvi að vera með aðgang að sameiginlegri sundlaug fyrir kjarnann. Komið inn í opið alrými þar sem er L-laga eldhúsinnnrétting með öllu helstu raftækjum en opið frá eldhúsi yfir í stofuna, frá stofu er útgegnt út á flísalagða verönd og lóðina sem er með gervigrasi ásamt einkasundlaug.
Í þessum kjarna erum við með þrjár íbúðir, tvær á jarðhæð sem báðar hafa einkasundlaug og hægt að ganga á milli garðana ef gestir vilja. Þriðja íbúðin er síðan á efstu hæð í sömu blokk. Frábær valkostur er stórfjölskyldan eða vinahópurinn er að ferðast saman.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni, gistirými er því fyrir 4-6 gesti.
Hjónherbergið er með 150 x 190 hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtu og hægt að ganga beint út í garðinn. Gestaherbergið er með tveimur 90 x 190 einstaklingsrúmum og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu, sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti.
Hverfið
Frá íbúðunum er um 15 min rölt í þjónustukjarnann Villa Martin Plaza þar sem finna má úrval veitingastaða, matvörubúð, barir, apótek og margt fleirra. Um 10 min akstur niður í verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard og um 15 min akstur niður á strendur miðjarðarhafsins. Aðeins um 5 min keyrsla á 3 golfvelli - Villa Martin - Las Ramblas og Campoamor - en úrval annarra golfvalla í um 20 min akstri.